Skólinn Bókasafnið Dagskrá Tenglar Um Alliance á Íslensku en Français

août 2007

Franskt dansiball í Hafnarhúsinu á Menningarnótt


Alliance française og Listasafn Reykjavíkur bjóða gestum Menningarnætur á dansiball í Hafnarhúsinu á Menningarnótt,

laugardaginn 18. ágúst  frá 19:30 til 21:30.

Slegið verður upp hefðbundu frönsku dansiballi þar sem gestir geta iðkað suðrænar fótamenntir af fagmennsku, eða bara hoppað með eigin aðferð, við traustan undirleik tríós harmónikkuleikarans Vadim Fedorovs. Auk hans skipa tríóið þeir Hjörtur Steinarsson, gítar, og Leifur Gunnarsson, kontrabassi.  

Aðgangur er ókeypis, en gestum stendur til boða að kaupa sér létt franskt fæði á staðnum, bæði fast og fljótandi.

júlí 2007

Alliance française býður menntaskólanema til vikudvalar í París:
 
Alliance française víða um heim, þar á meðal hér á Íslandi, stóð í vor fyrir samkeppni um það hvaða augum ungt fólk lítur Evrópu, “Visions d´Europe”. Þar gafst um 3000 þátttakendum frá 26 löndum á aldrinum 16 – 20 ára tækifæri til að tjá sig um þetta efni.
Alliance française í Reykjavík efndi til áðurnefndrar samkeppni hérlendis og varð Valborg Sturludóttir nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík, hlutskörpust. Verkefni hennar er frumleg og skemmtileg stuttmynd þar sem hún setur fram hugmyndir sínar um það hvernig Evrópa verður árið 2010. Verðlaunin eru vikulöng gæsiferð til Parísar dagana 7. – 14. júlí þar sem borgin verður skoðuð í krók og kring, farið í Versalahöllina og fleira.

júni 2007

Aðalfundur 2007
 
Aðalfundur Alliance française verður haldinn föstudagur 1 júni kl. 18:30 í húsakynnum félagsins ( Tryggvagötu 8).

Árshátíð 8. júni 2007 kl. 20.
Alliance Française veitist sú ánægja að bjóða ykkur á sína árlegu hátíð, sem haldin veður með hefðbundnu sniði 8. júni kl. 20 í húsakynnum AF.
Matreiðslan er í höndum Francois Fons.
Til að panta í gegnum tölvupost: alliance@af.is
1/2 vínflaska er í boði fyrir þá sem panta fyrir 26 Mai 2007
Verð á mann :
fyrir félaga og nemendur A.F. : 3900kr
Ekki félagar A.F. : 4700kr
kennitala: 420169-1839, bankareikningsnúmer: 0137-26-000378

> Matseðill...

apríl 2007

Kynning á Sædýrasafninu eftir Marie Darrieussecq:
Þjóðleikhúsið stendur fyrir kynningu á Sædýrasafninu, nýju leikriti eftir frönsku skáldkonuna Marie Darrieussecq, í Leikhúskjallaranum laugardaginn 21. apríl kl. 15:00. Dagskráin er einn af viðburðum í Viku bókarinnar og liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi Pas – Franskt vor á Íslandi.

16. - 29. april, leikhús : TURAK Ferð um Ísland.

Mitt á milli brúðuleiks og hefðbundins leikhúss liggur Turak, sem sumir nefna „víðavangsleikhús“. Þessi franski leikhópur mun koma fram víða um land: í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði, Selfossi, Hafnarfirði, Grundarfirði og í Borgarnesi, á litlum samkomustöðum þar sem nánd er mikil milli leikara og áhorfenda. Þessi nánd er leikhústöfrunum lífsskilyrði.
Michel Laubu er einkar ötull tilraunamaður í leikhúsi og kemur iðulega fram í svokölluðum „víðavangsleikhúsum“. Ætlun hans er að ljúka ferðalaginu um Ísland með uppsetningum í íbúðarhúsum í Reykjavík. Umfang sýninga og áhorfenda miðast við hvern stað fyrir sig. Þetta fyrirkomulag hentar vel hinum íslenska lífsmáta og greiðir leið fyrir tengingu leikara og áhorfenda.

Isabelle de Bisschop ásamt Ferðaskrifstofan Fjallabak hafa skipulagt ferð um Frakkland dagana 16. – 23. apríl næstkomandi.

Alliance Française styður þetta framtak heilshugar. Dagskrá fyrir þessa vikuferð um Périgord héraðið.
 

mars 2007

Frönsk-íslensk stuttmyndahátíð : laugardaginn 24.mars, frá kl. 15:00 – 23:00
> Dagskrá

 
Alliance française skipuleggur 7. frönsku kvikmyndahátíðina sem verður haldin í Háskólabíó dagana 3. mars til 1. apríl. Stuðningsaðilar kvikmyndahátíðarinnar eru Peugeot, Bernhard og Reykjavík Grapevine.

Í þetta sinn verður boðið upp á 35 franskar kvikmyndir af ýmsum toga og má nefna að hin fræga leikkona Isabelle Huppert leikur í 9 myndum. Í tengslum við kvikmyndahátíðina verður svo sýning á 17 portrettljósmyndum af leikkonunni eftir ýmsa franska ljósmyndara (Carole Bellaiche, Edouard Boubat, Ronald Chammah, Roger Corbeau, Robert Doisneau, Claude Gassian, Jean-Henri Lartigue…). Sýningin verður einnig haldin í Háskólabíó.

Þann 24. mars verður kvikmyndin “Stríðsmenn fegurðar” með Ernu Ómarsdóttur frumsýnd. Myndin er sú fyrsta í röð níu kvikmynda eftir Pierre Coulibeuf sem verða sýndar á hátíðinni. Kvikmyndir Coulibeufs (heimildarmyndir, leiknar kvikmyndir og tilraunamyndir) hafa verið útnefndar og verðlaunaðar á ýmsum kvikmyndahátíðum.

“PARIS JE T’AIME” er ástarjátning til frönsku höfuðborgarinnar. 18 örsögur sem færa okkur hið ómótstæðilega andrúmsloft Parísarborgar. Margir af þekktustu leikurum og leikstjórum heims tóku þátt í gerð myndarinnar.

meira...

febrúar 2007

22. febrúar: Franskt vor á Íslandi, opnunarhátið.

janúar 2007

Hátíðin la Galette des Rois verður haldin næsta laugardag í húsnæði Alliance Francaise, Tryggvagötu 8, 2. hæð frá kl. 15:00.
Leikir fyrir börnin, dansað verður og sungið og auðvitað verður kóngurinn krýndur!
500 kr. fyrir fullorðna - 250 kr. fyrir börn. Drykkir verða í boði AFRADIS.

HÆGT VERÐUR AÐ SKRÁ SIG TIL FIMMTUDAGSKVÖLDS 11. JANÚAR með tölvupósti til muriel@veislumeistarinn.is eða í síma 697 7514.
60 sæti í boði
 

 

FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
Frá 15. janúar til 15. apríl 2007
Innritun hafin í síma 552 3870
Námskeiðin standa í 13 vikur frá 15. janúar til 15. apríl 2007.
 

 

FÉLAGSSKÍRTEINI ALLIANCE FRANÇAISE
Verð : 2900 kr.

Ókeypis fyrir nemendur Alliance française.
Það veitir að gang að :

  • BÓKASAFNI : Opið alla virka daga frá kl. 16:00 til kl. 19:00 og á laugardögum frá kl. 15:30 til 17:30.
    Yfir 7000 bækur (skáldsögur, listir, vísindi, myndasögur,barnabækur) og fjöldi tímarita.
    DVD og myndbandsspólur með nýjum og eldri frönskum kvikmyndum, heimildarmyndum og menningarþáttum.

  • MENNINGARVIÐBURÐUM : kvikmyndahátíðum,fyrirlestrum, tónleikum, sýningum.

  • KVIKMYNDAKLÚBBNUM : Alliance française sýnir reglulega franskar kvikmyndir og er aðgangur ókeypis fyrir meðlimi félagsins.

  • NÁMSFERÐUM TIL FRAKKLANDS : aðeins fyrir meðlimi. Ferðirnar eru farnar á síðasta námskeiðstímabilinu, í lok maí.

 

NEMENDAFERÐIR TIL FRAKKLANDS

FRAMHALDSSKÓLAR
Alliance française býður frönskukennurum á Íslandi að skipuleggja í samvinnu við félagið nemendaferðir sem eru sniðnar að þörfum nemenda : dagsetningar og lengd dvalar, með eða án frönskunámskeiða, skemmtanir, ferðalög og skoðunarferðir.

 

desember 2006
 

Kvikmyndir: L´Alliance Française og Háskólabíó kynna "La Trahison" (Svik)
Frakkland 2006, 80 mín.
Leikstóri: Philippe Faucon
Aðalhlutverk : Vincent Martinez, Cyril Troley, Ahmed Berrhama

Roque er yfirmaður herdeildar franska hersins í Alsírstríðinu. Herdeild hans er staðsett í litlu þorpi í austurhluta landsins. Hann er þreyttur á átökunum en reynir að sinna starfi sínu eftir bestu getu. Þorpsbúar þurfa að þola kúgun og pyntingar að hálfu hersins og hermennirnir eru að fram komnir. Roque kynnist ungum hermanni af norður-afrískum uppruna og vinátta þeirra eykur enn á fáránleika þessa ömurlega stríðs.

Aðgangur ókeypis fyrir félaga A.F. gegn framvísun þessa miða (eða framvísun félagsskírteinis frá 2006 og 2007)
Sýningar í Háskólabíó : Fimmtudagur 14. Des. kl. 22:10 / Sunnudagur 17. Des. kl 18:00 / Mánudagur 18. Des. kl 20:00.
JÓLAHLAÐBORÐ

1. desember kl. 19:30 í húsnæði Alliance française: Matreiðslumeistarinn François Fons býður upp á sérstakan matseðil til þess að hefja jólahaldið. Það er einnig mikilvægt að panta miða tímanlega fyrir jólakvöldverðinn.

Alliance Française veitist sú ánægja að bjóða ykkur á sína árlegu jólahátíð, sem haldin verður með hefðbundnu sniði 1. desember kl.19:30 í húsakynnum AF.
Matreiðslan er í höndum François Fons

Verð: kr. 3.800 (1/2 flaska af rauðvíni innifalin) - greitt er við pöntun (fyrir 27. nóv.)
 
Varðandi félagsskírteinin:
Félagsskírteinin fyrir 2007 verða tilbúin á skrifstofu Alliance française frá og með 10 desember 2006. Þau gilda til 31. desember 2007. Félagsskírteinið veitir ekki aðeins aðgang að bókasafninu heldur njóta meðlimir A.F. einnig sérstakra kjara á viðburðum sem verða í tengslum við Frakklandshátíðina sem haldin verður 22. febrúar til 13. maí 2007.
 

nóvember 2006
 

Frönsk sálumessa á allra heilagra messu
Sunnudaginn 5. nóvember gengst Listvinafélag Hallgrímskirkju fyrir sálumessutónleikum. Að þessu sinni fær Listvinafélagið kammerkórinn Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitina í Haag til liðs við sig. Flutt verða verkin Messe de requiem og De profundis eftir franska tónskáldið André Campra (1660-1744) en hvorugt þessara verka hefur verið flutt hér á landi áður.
Hefð hefur skapast fyrir því að flytja sálumessu í Hallgrímskirkju á allra heilagra messu. Margir leggja leið sína í kirkjuna á þessum degi til að minnast látinna ástvina sinna á hátíðlegan hátt og hefur undanfarin ár verið uppselt á sálumessutónleika Listvinafélagsins. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Schola cantorum hefur í gegnum tíðina flutt ýmis verk barokkmeistaranna við góðan orðstír. Að þessu sinni skipa kórinn tíu söngvarar en nokkrir þeirra fara jafnframt með einsöngshlutverk. Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006.

Félagar AF fá 25% afslátt á miðaverði, þ.e. 1500 í stað 2000 kr.
24. nóvember kl. 20:00 í húsnæði Alliance française: Þið getið upplifað eða endurupplifað ógleymanleg atvik af sjónvarpsskjánum sem eru hluti af sameiginlegu minni okkar.
Aðgangur er ókeypis á þessa sýningu en sætaframboð er takmarkað. Þess vegna bjóðum við þeim sem kjósa þægindi að panta sér sæti í síma 552-3870 (milli kl. 16 og 19).

Eftir sýninguna eru veitingar í boði franska sendiráðsins og Alliance française.
 

október 2006
L´Alliance française og Háskólabíó kynna "Les Mauvais joueurs" (Hinir tapsáru)

Sýningar í Háskólabíó : Mánudagur 30. okt. kl 20:00 / Fimmtudagur 2. Nóvember kl. 22:00 / Sunnudagur 5. nóvember kl 18:00 /

Frakkland 2005, 85 mín.
Leikstóri: Frédéric Balekdjian
Aðalhlutverk : Pascal Elbé, Simon Abkarian, Isaac Sharry

Tegund : Sakamálamynd
Sentier hverfið í París. Jólin nálgast og líf Vahé Krikorian er á leiðinni í vaskinn.
Fyrirtækið sem hann rekur með föður sínum er skuldum vafið og í þann mund að fara á hausinn. Lu Ann, konan sem hann elskar, yfirgefur hann og spilasvindlið sem hann stundar með Sahak og bróður sínum Toros er honum ekki til framdráttar. Vahé missir tökin á tilverunni og það verður ekki aftur snúið...

september 2006
 

FRÖNSKUNÁMSKEIÐ: Frá 18. sept. til 15. des. 2006, Innritun hafin í síma 552 3870

Félagsskírteini Alliance française, verð : 2900 kr. (Ókeypis fyrir nemendur Alliance française)

Það veitir aðgang að :

BÓKASAFNI : Opið alla virka daga frá kl.16:00 til kl.20:00. Yfir 7000 bækur (skáldsögur, listir, vísindi, myndasögur, barnabækur) og fjöldi tímarita.
DVD og myndbandsspólur með nýjum og eldri frönskum kvikmyndum, heimildarmyndum og menningarþáttum.
MENNINGARVIÐBURÐUM : kvikmyndahátíðum, fyrirlestrum, tónleikum, sýningum.
KVIKMYNDAKLÚBBNUM : Alliance française sýnir reglulega franskar kvikmyndir og er aðgangur ókeypis fyrir meðlimi félagsins.
NÁMSFERÐUM TIL FRAKKLANDS : aðeins fyrir meðlimi. Ferðirnar eru farnar á síðasta námskeiðstímabilinu, í lok maí.
NEMENDAFERÐIR TIL FRAKKLANDS
FRAMHALDSSKÓLAR

Alliance française býður frönskukennurum á Íslandi að skipuleggja í samvinnu við félagið nemendaferðir sem eru sniðnar að þörfum nemenda : dagsetningar og lengd dvalar, með eða án frönskunámskeiða, skemmtanir, ferðalög og skoðunarferðir.
 
Málþing um Jean-Baptiste Charcot
málþing í Háskóla Íslands í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Ísland.
Fimmtudaginn 14. september frá 14:00 -17:00 í Hátíðasal Háskóla Íslands
 

 


Skalasafn::
sept 2008 - maí 2009 | sept 2007 - maí 2008 | sept 2006 - maí 2007 | sept 2005 - maí 2006 | sept 2004 - maí 2005 | sept 2003 - maí 2004 | sept 2002 - maí 2003 | sept 2001 - maí 2002 | jan - maí 2000 | okt - des 1999