|
Velkomin til Alliance française í
Reykjavík
september | október | nóvember | desember | janúar | febrúar | mars | apríl | maí
september
2004
október
2004
|
Alliance française og
Samfilm veitist
sú ánæga að bjóða þér á forsýningu myndarinnar “Tveir
bræður” sem sýnd verður í Kringlubíó í Kringlunni
laugardaginn 2. október kl. 18.
Leikstjórinn
Jean-Jacques Annaud verður viðstaddur og eftir sýninguna
verða umræður þar sem hann situr fyrir svörum.
Myndin er með ensku tali og íslenskum texta.
Þið þurfið einungis að hafa samband við okkur til að panta miða á
sýninguna.
Alliance française er opið alla virka daga frá kl.13.30 til kl.18 og
laugardaga frá kl.13 til kl.16. |
 |

|
Alliance française býður til klassískra gítartónleika í Norræna
húsinu föstudaginn 8.október. Flytjendur eru hinir heimsþekktu
listamenn dúettsins “Duo
Astor”, þau Francisco Bernier og Gaëlle Chiche sem hlotið hafa
fjölda verðlauna. Þau leggja nú af stað í nýja tónleikaferð um
heiminn og hefst hún í Reykjavík. Héðan halda þau til Bandaríkjanna
svo til Kanada og þaðan til Mexíkó. Hápunktur tónleikaferðarinnar er
upptaka breiðskífu þeirra ásamt “Berkeley Symphonic orchestra of San
Francisco” undir stjórn Kent Nagano.
Tónleikarnir hefjast kl.20.00
Aðgangur er ókeypis.
|
Alliance Francaise á Íslandi, Háskóli Íslands og sendiráð Frakklands
bjóða ykkur á fyrirlestur franska blaðamannsins og
háskólakennarans Jacques Julliard: “Bandaríkin, Frakkland,
Evrópa stormasöm vinátta”.
Fyrirlesturin verður haldinn í öskju, náttúrufræðahúsin Háskóla
Íslands, stofu 132, þriðjudaginn 12.október kl 17:15. Hann verður á
ensku.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Bandaríkin og Frakkland hafa ævinlega snúið bökum saman þegar
stórviðburðir hafa skekið mannkyssöguna og samband ríkjanna hefur
oftastnær verið gott og náið, enda byggja þjóðirnar tilveru sína á
svipuðu gildismati. Þó hefur stundum myndast vík milli vina. Sem
dæmi um það má nefna að litlir kærleikar voru með de Gaulle og
Roosevelt í síðari heimsstyrjöldinni, Frakkar drógu sig út úr NATO
árið 1966 og Frakkar voru alfarið á móti innrás Bandaríkjamanna í
Írak á síðasta ári.
Í erindinu fjallar Jacques Julliard um ástæðu þessara ólíku viðhorfa
vinaþjóðanna til ýmissa mála, veltir fyrir sér stöðu Frakklands
innan ESB annars vegar, og samskiptum ESB og Bandaríkjanna hins
vegar. Hann dregur upp mynd af tveimur ólíkum sjónarmiðum sem snúst
um misnáin tengsl Bandaríkjanna og Evrópu, sýnir framá að Bretar
vilji hafa þau náin, en að Frakkland hallist að því að Evrópa haldi
sig í vissri fjarlægð frá stórveldinu Bandaríkjunum.
Jacques Julliard (f. 1933) er þekktur blaðamaður og vinsæll
bókahöfundur í Frakklandi og hinum frönskumælandi heimi almennt.
Hann er aðstoðarritstjóri eins útbreiddasta fréttavikurits
Frakklands, Le Nouvel Observateur, og skrifar vikulega pistla í það,
auk þess sem hann hefur sent frá sér á þriðja tug bóka um
samtímasögu, stjórnmál og stjórnmálaheimspeki, nú síðast um skort á
stjórnmálaskörungum á vesturlöndum. Hann hefur ennfremur talsvert
kennt við ýmsa franska háskóla og menntastofnanir í Frakklandi og
víðar, m.a. við Princtonháskóla í Bandaríkjunum.
Hingað til lands kemur Jacques Julliard eftir að hafa haldið röð
fyrirlestra víða í Bandaríkjunum nú í september og október um sama
efni og hann fjallar um hér, m.a. í Harvard University Center for
European Studies og City University of New York.
You can download the text in english
(word document)
|
 |
 |
Margrét Sigfúsdóttir listmálari býður yður að
vera viðstödd við opnun
sýningar sinnar "Óður til Íslands" í Hafnarborg, Hafnarfirði,
Laugardaginn 16.
október nk. klukkan 15. Allar myndirnar sem sýndar eru voru málaðar
í París.
Sýningin stendur yfir frá 16. október til 8. nóvember frá 11-18
daglega.
Lokað þriðjudaga.
Allar nánari upplýsingar er að finna á
http://www.margretsigfusdottir.com |
Alliance française Reykjavík og
frönskudeild Háskóla Íslands bjóða til sýningar á myndinni « 24
klukkustundir úr sjónvarpinu : Stærstu stundir franska
sjónvarpsins á stórum skjá », fimmtudaginn 21. október kl. 20, í
stofu 132 í Öskju, hinu nýja náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands.
Aðgangur er ókeypis á þessa einstæðu sýningu á stórum skjá en hún
gefur tækifæri til að hverfa aftur í tímann og njóta, í hátt á aðra
klukkustund, myndskeiða sem sum hver hafa ekki birst áður. Þessar
upptökur, sem hrífa sannarlega áhorfendur, voru valdar úr safni Ina
(Institut national de l’audiovisuel, þ.e. Frönsku
ljósvakamiðlastofnuninni). Missið ekki af fyrstu skrefum fólks sem
þótti efnilegt á ýmsum sviðum, svo sem 17 ára tennisstjörnunnar
Yannick Noah eða hins 13 ára Frédéric Beigbeder. Mohammed Ali kom
fram í þættinum Apostrophe, François Mitterand og Valéry Giscard
d’Estaing áttust við í « Le monopole du cœur », Serge Gainsbourg og
Brigit Bardot komu saman fram í sjónvarpi. Sjáið einnig Claude
François, sem og Rolling Stones koma fram í fyrsta sinn í sjónvarpi
í Frakklandi… Þetta er einstætt úrval af rúmlega 100 myndskeiðum sem
enginn má missa af.
Lista yfir öll myndskeiðin er að finna á slóðinni :
http://www.24heurestv.com/films/index.html |
 |
Kvikmyndaklúbbur Alliance française-Filmundur sýnir "herbergi
galdrakvennanna” eftir Claude MILLER(1999)
Með Claude Miler, Mathilde Seigner, Annie Noel, Yves Jacques,..
Óendanleg doktorsritgerð í mannfræði, lítilfjörlegir foreldrar,
giftur elskhugi… Claire er þrítug og kvelst af hræðilegum
mígreniköstum. Hún hafnar að lokum á einkaklíník sálfræðings hennar,
Dr. Fish, þar sem hún dvelst í einn mánuð í herbergi með Eléonore og
Odette. Claire er gjörbreytt þegar hún losnar úr þessari þvinguðu
sambúð…
Kvikmyndin er gerð eftir kafla úr skáldsögunni “Les Yeux Bandés”,
eftir hina norsku Siri Hustvedt, eiginkonu Paul Auster.
Myndin verður sýnd í Háskólabíói, fimmtudaginn 28.10 kl. 22.15,
sunnudaginn 31.10. kl. 18.00 og mánudaginn 01.11. kl. 20.00. Hún er
með enskum texta.
Aðgangur er ókeypis fyrir meðlimi í Alliance française sem sýna
félagsskírteini og persónuskilríki við innganginn.
http://www.allocine.fr/film/fichefilm_gen_cfilm=23682.html |
Leikritið Héri Hérason (Lapin
Lapin) var frumsýnt í Borgarleikhúsinu fyrir tveimur vikum og hefur
hlotið frábærar undirtektir!
Stefán Jónsson og félagar hans hafa búið til listaverk. Elísabet
Brekkan / DV
Brilljant Leikhús! Valgeir Skagfjörð / Fréttablaðið
Það úir og grúir af skemmtilegum og smellnum hugmyndum í stílfærðum
leik hópsins. María Kristjánsdóttir / Morgunblaðið
Höfundur verksins, Coline Serreau, verður viðstödd sýninguna
laugardagskvöldið 30. október, og tekur þátt í umræðum að
sýningu lokinni. Léttar veitingar í boið Franska sendiráðsins.
Coline Serreau er leikkona, rithöfundur og leikstjóri, líklega
frægust fyrir kvikmynd sína "Trois hommes et un couffin."
Félagsmönnum Alliance Francaise býðst, af þessu tilefni, að kaupa
leikhúsmiðann þetta kvöld á 2.100 krónur (í stað 2.700).
Framvísið félagsskírteinum í miðasölu og fáið afsláttinn. Hver
félagsmaður fær 1 miða á þessu verði.
Héri Hérason er ekki barnaleikrit. HINS VEGAR er alveg gráupplagt
fyrir foreldra að nýta sér það að börn 12 ára og yngri fá frítt í
leikhúsið á almennar fullorðinssýningar í Borgarleikhúsinu - og
börnin munu ekki skemmta sér síður en þeir fullorðnu á þessari
sýningu.
Það er Oddný Eir Ævarsdóttir sem þýddi Héra Hérason úr frönsku. Tólf
leikarar taka þátt í sýningunni, það er Bergur Þór Ingólfsson sem
fer með titilhlutverkið og Hanna María Karlsdóttir leikur mömmuna.
Aðrir leikarar eru: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson,
Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðsdóttir, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Marta Nordal, Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Sveinn Geirsson og Theodór Júlíusson.
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Hljóðmynd er í höndum Davíðs Þórs
Jónssonar og Helga Svavars Helgasonar, búninga hannar Jón Sæmundur
Auðarson, leikmynd Börkur Jónsson og leikstjóri er Stefán Jónsson.
Nánari upplýsingar um sýninguna og höfundinn fást á heimasíðu
leikhússins,
www.borgarleikhus.is
|
nóvember
2004
Kvikmyndaklúbbur Alliance française-Filmundur sýnir "Hinir leyndu
töfrar borgarastéttarinnar” eftir Luis Buñuel (1972)
Aðalhlutverk: Stéphane Audran, Jean-Pierre Cassel, Paul Frankeur,
Fernando Rey, Delphine Seyrig.
Algjör klassík eftir spænska meistarann Luis Buñuel .
Thévenot fjölskyldan kemur í kvöldmat hjá Sénéchal fjölskyldunni .
Óvænt uppákoma : Matarboðið var fyrirhugað daginn eftir.
Myndin er kaldhæðnisleg, fyndin og sýnir tvöföldu borgarastétt enga
samúðar .
Mynd í dæmigerðum stíl Luis Buñuel, " Hinir leyndu töfrar
borgararstéttarinnar"er súrrealísk ádeila á þjóðfélagsgildin.
Buñuel sýnir á súrrealískan hátt kvöldmáltíð sem mun aldrei eiga sér
stað. Nokkrir vel stæðir vinir hyggjast hittast og eyða kvöldinu
saman. Upphaflega virðist sem þeim hafi skjátlast og komið í boðið á
röngum degi en undarlegustu atvik gerast og þar kemur að þau eru
trufluð af her á heræfingu. Seinna komast þau að því að þau eru bara
persónur í leikriti sem geta ekki borðað kvöldverð saman. Öll þessi
ævintýri eru tvinnuð saman með táknrænum draumum þessara persóna.
Hárfín þjóðfélagsádeila og ein af fyndnustu myndum Buñuel. Vann til
verðlauna sem besta erlenda myndin 1972 .
Academy Award Best foreign film 1972
Myndin verður sýnd í Háskólabíói, fimmtudaginn 11.11 kl.
22.15, sunnudaginn 14.11 kl. 18.00 og mánudaginn 15.11. kl. 20.00.
Hún er með enskum texta.
Aðgangur er ókeypis fyrir meðlimi í Alliance française sem sýna
félagsskírteini og persónuskilríki við innganginn.
|
 |
| |
|
Alliance française í
Reykjavík býður upp á nýjung frá 27. nóvember að hafa sögustund á
frönsku fyrir ungu kynslóðina.
Sögustundin verður í höndum sögumannsins Antoine Mouton, sem mun
lesa frönsk ævintýri fyrir börnin.
Börnin sem taka þátt verða að vera í fylgd fullorðinna. Sögustundin
verður á laugardögum frá 12.15 til 12.45 í húsakynnum Alliance
française á Tryggvagötu 8, 2. hæð. |
desember 2004
 |
Alliance française og Háskólabíó er það ánægja
að bjóða ykkur á opnun
sakamálamyndahátíðar í Háskólabíó, fimmtudaginn 25. nóvember kl.
20:15.
Sýnd verður kvikmyndin Le Poulpe (Kolkrabbinn) eftir Guillaume
Nicloux. Myndin er á frönsku með enskum texta.
"Sakamálamynd” hefur að geyma mismunandi tegundir kvikmynda s.s.
lögreglumyndir, þjóðfélagsádeilu og listrænar myndir. Þetta flókna
myndform hefur höfðað til franskra kvikmyndaleikstjóra allar götur
síðan kvikmyndalistin kom fram á sjónarsviðið (með t.d. Feuillade,
l’Herbier, Tourneur...) fram til ársins 2000. Erlendir
kvikmyndaáhorfendur virðast samt sem áður tengja heim franskra
sakamálamynda einna helst við 7. og 8. áratuginn.
Þess vegna vill Alliance française í Reykjavík kynna þær
sakamálamyndir sem gerðar hafa verið á undanförnum 20 árum. Þær eru
ekki sögulegt yfirlit heldur sýna þær hversu sterk sakamálahefðin er
og einnig stórkostlega endurnýjun hennar síðastliðin tvö ár.
Kvikmyndahátiðin stendur frá 25. nóvember til 10. desember. Allar
myndirnar eru með enskum texta.
Tilboð: Einn miði á 700 krónur og passi allar 8 myndirnar 2200 krónur. |
| Hinn heimsfræka franska arkitekt Jean Nouvel
þarft vart að kynna, en meðal verka hans eru Institute Monde Arabe og
Cartier Foundation í Paris, óperuhúsið í Lyon, menningarhús í Lucerne
og dómshús í Nantes. Fyrirlesturinn sem verður haldinn í Öskju
föstudaginn 3. desember, náttúrufræðahúsi HÍ, hefst kl.17.00. |
Alliance française er það ánægja
að bjóða þér á opnun sýningar á
málverkum eftir Marie-Sandrine Bejanninn laugardaginn 4.
desember kl. 14:30 í húsnæði Alliance française í Tryggvagötu 8.
Sýningin er frá 3. til 20. desember.
Opið mánudag til föstudags 13.30-18.00 og 13.00-17.00 laugar- og
sunnudaga. |
 |
 |
Miðvikudaginn 8. desember
kl.20 verður bókmenntakvöld í Alliance francaise, þar sem Þórarinn
Eldjárn les upp úr nýrri skáldsögu sinni, Baróninum, og síðan
ræðir Friðrik Rafnsson, bókmenntafræðingur og þýðandi, við Þórarin um
verkið og tengsl þess við Frakkland og franska menningu.
Bókmenntakvöldið verður haldið í húsakynnum Alliance française,
Tryggvagötu 8 / 2.hæð. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn og spjallið fara fram á íslensku |
janúar 2005
|
Gítar- Jazz tónleikar
ókeypis á Nasa fimmtudaginn 13. janúar kl. 20:30 : Framkoma
Sylvain Luc og Björn Thoroddssen
Sylvain Luc, er vel þekkt nafn í jazz heiminum sem mun spila með
Birni Thoroddsen á einstökum ókeypis tónleikum í boði Alliance
française og Tónastöðvarinnar fimmtudaginn 13. janúar kl. 20:30 á
Nasa. Sylvain Luc er á meðal bestu gítarleika heims, hann hefur
hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og hefur meðal annars komið
fram með eftirtöldum hljómlistamönnum Bireli Lagrène , Elvin Jones,
Steve luthaker,...o.sv.fr. |
 |
|
Alliance française tilkynnir hér með
að frönsk kvikmyndahátíð
byrjar föstudaginn 14. janúar og mun ljúkar þann 31. janúar n.k (
verður hugsanlega framlengd).
Níu kvikmyndir verða sýndar:
ATH:Takmarkað magn boðsmiðar fyrir meðlimi Af á
opnunarsýninguna (hver boðsmiði er fyrir tvo). Opnunarsýningin verður
föstudaginn 14. janúar kl. 19:30 í Háskólabíó. Myndin sem sýnd verður
"Un long dimanche de fiançaillesde Jp Jeunet" ( með íslenskum texta )
Hafið sem fyrst samband við okkur !
Hægt verður að kaupa sérstakan kvikmyndapassa fyrir meðlimi Alliance
française fyrir einungis 2500 ISK á allar 9 myndirnar. |


|
FRANSKUR NÝSIRKUS : HREYFA EKKI
HREYFA " BOUGEZ PAS BOUGER "
OKI HAIKU DAN flokkurinn, Fjölleikahús í leikhúsinu, leiklist í
fjölleikahúsinu:
Annar kastar hlutum í loft upp og dansar, hinn dansar og flýgur.
Á miðju sviðinu sveiflast svifróla og þar eru einnig tveir ávalir
líkamar.
HREYFA EKKI HREYFA er sýning þar sem unnið er með líkamshreyfingar
innan hárnákvæmra forma, þetta er einlæg sýning fyrir alla
fjölskylduna þar sem fimleikum, leikjum með hluti, látbragðsleik,
leiklist og dansi er blandað saman á nýstárlegan og skemmtilegan hátt.
Leiksýningin kemur hingað í boði Alliance Française í Reykjavik í
samstarfi við Borgarleikhúsið.
Aðeins verður ein sýning á verkinu í Reykjavík, laugardagskvöldið
29. janúar kl. 20:00.
Listamennirnir eru:
Sébastien Dault (dansar, sveiflar sér í svifrólu)
Keisuke Kanai (dansar, leikur látbragðsleik, kastar hlutum í loft upp)
Sébastien Dault og Keisuke Kanai tóku þátt í 13. keppni Þjóðlegu
fjöllistamiðstöðvarinnar í Chalons en Champagne (unnu að sýningunni
Cirk 13 sem Philippe Découflé leikstýrði.)
Sýningar OKI HAIKU DAN flokksins hafa verið settar upp á öllum helstu
fjölleikahátíðum heims, svo sem í Róm, Bresica, Porto, o.s. frv. Eftir
að hafa gert stuttan stans í Reykjavík leggur flokkurinn upp í einn
eina sýningarferðina um heim allan og heldur til Japans, Kamerún,
Gabon, Finnlands, Marokkó og Bandaríkjanna.
Miðasalan er hafin í Borgarleikhúsinu, Listabraut 3 og á
www.borgarleikhus.is og í
midasala@borgarleikhus.is
og í síma 568 8000.
Verð kr. 2.100 (Price for Alliance française members and students 1500
ISK )
Places are also availaible at the Af office at opening hours ( monday
to friday from 13:30 to 18h00/ saturday from 13:00 to 16:00 |
febrúar 2005
 |
NoJazz ( franskur elektró-jass ) og Jagúar á Nasa
Franska elektró-jazz sveitin NoJazz, skrautfjöður franskrar danstónlistar, verður með
venna tónleika á Nasa í boði Alliance Française, föstudaginn 25. febrúar og laugardaginn
26. febrúar. Hin goðsagnakennda íslenska fönkhljómsveit Jagúar kemur fram með NoJazz á
báðum tónleikunum. NoJazz er skipuð þeim Philippe Sellam, (saxófón), Guillaume Poncelet,
(trompet), Pascal Reva, (slagverk og gítar), Philippa Balatier, (hljómborð), Mickael Chekli,
(sample). Þeir félagar eru frábærir hljóðfæraleikarar og eru jafnvígir á jass, hip-hop,
fönk og jungle. Óhætt er að mæla með tónlist þeirra fyrir forvitin eyru!
|
NoJazz gaf út sinn fyrsta disk árið
2002 eftir að hafa einbeitt sér lengi að tónleikahaldi. Þessi fyrsta plata var pródúseruð
af Teo Macero sem m.a. hefur unnið með Miles Davis. Árið 2004 kom svo plata númer tvö:
Nolimits Mixes & Combinations, sem inniheldur endurhljómblandanir með Earth, Wind and Fire,
Claude Nougaro, Ibizarre, Mangu, Wally Badarou og fleirum.
Eftir að hafa sigrað frönsku tónlistarsenuna hóf NoJazz útrás sína með tónleikum víðsvegar
um heim og hefur nú unnið hjörtu tónlistarunnenda í yfir 20 löndum (sem dæmi má nefna að í
Montreal komu 10.000 áhorfendur á tónleika þeirra). Strákarnir í NoJazz eru dáðir jafnt af
tónlistarunnendum sem gagnrýnendum og nú gera þeir sig líklega til þess að sigra íslensku
tónlistarsenuna. Það má því enginn missa af þessum einstæðu tónleikum!!!
|
|
NOJAZZ og JAGÚAR föstudaginn 25. febrúar og laugardaginn
26. febrúar. kl.23.00 á NasaForsala 700 kr í Nasa og í
Alliance française opið alla virka daga kl. 13.30 til kl. 18 og laugardaga kl. 13 til kl. 16
Nánari upplýsingar:
http://www.nojazz.net
http://www.nojazz.de
http://www.enzoproductions.com/english_biographienojazz.htm
http://www.jaguar.is
NoJazz er ein af þremur erlendum hljómsveitum sem Up Music/Warner Brothers halda hvað mest
á lofti.
|
mars 2005
 |
Electroflamenco tónleikar á Nasa lau. 12. mars kl. 17
Aðgangur ókeypis
Von Magnet Electroflamenco halda tónleika laugardaginn 12. mars á NASA
í Reykjavik.Von Magnet var stofnuð í London árið 1985 og er undir miklum áhrifum frá Phil
Von. Hljómsveitin er afsprengi síð "industrial" hreyfingarinnar og hefur aðallega komið
fram á neðanjarðarsviði Lundúnaborgar. Þeir túlka ólíka rytþma og tjáningu Flamingotónlistar.
Það má segja að þeir hafi komist í kynni við Flamincotónlistina í gegnum listamenn af eins
ólíkum sviðum sem leiklist og myndlist. "El sexo sur realista" segir að hér sé um að ræða
blöndu af rafrænni tónlist, leiklist, videóinnsetningu og auðvitað Flamenco. Þannig má segja
að þetta sé ný tónlistarstefna...
|
|
Fyrstu plöturnar voru gerðar undir stjórn Ken Thomas (sem er framleiðandi Sigur Rós)
Von Magnet sem líkist götuleikhúsi hefur á undanförnum árum lagt land undir fót og sýnt hátt
í 400 sýningar.
|
 |
|
Þann 12. mars leikur Von Magnet hér á landi, en sveitina skipa Phil Von (dans, trommur,
tölvur, rödd), Flore Magnet ( söngvar, videó, sviðslist, leiklist), Yana Maizel
(dans), Sabine Van Den Oever (flamenco-gítar) og Nikho Def, hljóðmaður.
Von Magnet kemur til Íslands til að halda eina tónleika á Nasa laugardaginn 12. mars kl. 17
(ókeypis aðgangur) Tilefnið er útgáfa 10. plötu þeirra, "De l'aimant". Þetta er
einstaklega heillandi tónlist, blanda af rafrænni tónlist og þjóðlagatónlist og eru allir
áhugamenn hvattir til að mæta og láta ekki þennan einstaka atburð ekki framhjá sér fara.
|
apríl 2005
 | Sígaunajazz
: Elios og Boulou Ferré á tónleikum í
Reykjavík laugardaginn 2. apríl 2005 á Nasa
kl.17.00
Aðgangur
ókeypis
Alliance
française
býður á tónleika með Elios
og Boulou Ferré, þekktum jazztónlistarmönnum
á Nasa laugardaginn 2 apríl kl. 17.00
“Sígaunatónlist” nær engan veginn
að lýsa tónlist Boulou og Elios Ferré.
Sú tónlist er þeim þó í
blóð borin því faðir þeirra,
Matelot Ferré spilaði með Django Reinhardt, sem
og frændur þeirra Baro og Sarane. Sígaunajazzinn
er þeim því hugleikinn en þeim hefur
tekist að blanda honum við aðra tónlist og
skapa sér þannig eigin stíl.
“Emancipated heirs of Django Reinhardt, guitarists
Boulou & Elios Ferré distill the quintessence of a
pluralistic music, connecting, as if by magic, seemingly distant
sonorous universes.”
Richard Robert, Les Inrockuptibles - Febrúar 2004
|
Boulou
lærði á gítar af föður sínum
frá sex ára aldri og snéri sér svo
að klassískum gítarleik sem hann lærði
hjá Francisco Gil auk þessa lagði hann stund
á hljómfræði og tónsmíðar
hjá Olivier Messiaen. Hann hefur spilað með mörgum
þekktum tónlistarmönnum s.s. Dexter Gordon,
Dizzy Gillespie, Kenny Clarke, Chet Baker, Steve Lacy, Stéphane
Grapelli, Babik Reinhardt og Christian Escoudé. Í
tónsmíðum hans, útsetningum og gítarleik
má merkja áhrif jafn ólíkum listamönnum
og Bach, Léonard Bernstein, Lennie Tristano, Miles Davis
og Lee Konitz.
Elios
lærði einnig á gítar hjá föður
sínum og svo flamencogítarleik hjá einum
af nánustu samstarfsmönnum Carlos Montoya. Hann lærði
hljómfræði og tónsmíðar hjá
Pierre Lantier og féll svo fyrir Jimi Hendrix. Hann hefur
spilað með Larry Coryell, Ed Thigpen, Al Levitt og Svend
Asmussen. Árið 1974 gekk hann til liðs við
bróður sinn í “Corporation Gypsy Orchestra”
sem vakti athygli Frank Zappa og Carlos Santana. |

|
|
Þessi
tvö undrabörn sem eru nú orðin þroskaðir
tónlistarmenn hafa spilað tveir saman síðan
1978. Diskurinn þeirra “Pour Django”
var hrósað af Barney Kessel og Chet Baker. Bræðurnir
hafa leikið á fjölda tónleika um allan
heim. Á síðasta diski sínum “Shades
of a dream” sem kom út á síðasta
ári bræða þeir sígaunajazzinn saman
við barokk og aðra tónlistarstrauma.
Þessu
einstæðu tónleikar eru ókeypis og öllum
opnir. Aðdáendur Django Reinhardts verða ekki sviknir
og líklegt er að Ferrébræðurnir opni
mörgum nýja sýn á sígaunajazzinn.
|

|
Blandine
Kriegel,
stjórnmálaheimspekingur verður einn af aðalfyrirlesurum
á þingi sem haldið verður frú Vigdísi
Finnbogadóttur til heiðurs í vikunni. Fimmtudaginn
14. apríl kl. 17.15 flytur hún flytja í
hátíðarsal Háskóla Íslands
um stefnu Frakka í trúmálum undir yfirskriftinni:
Trúlaus
opinber vettvangur og aðlögun menningarhópa í
Frakklandi
Í fyrirlestri
sínum mun hún fjalla um lög sem sett hafa verið
nýlega og banna börnum að ganga með áberandi
trúartákn í skólum ríkisins.
Lög þessi voru sett fyrir fáum misserum til
að leysa áralangar deilur sem staðið höfðu
vegna þess að sumir skólastjórnendur vildu
banna stúlkum úr röðum múslíma
að bera slæðu sem hylur hár þeirra.
Þau vöktu neikvæð viðbrögð víða.
Samkvæmt frú Kriegel hafa lögin hafa virkað
vel og ekki er annað að sjá en að friður
ríki um þau nú. Ástæðuna
fyrir þessu er að leita í hinu illþýðanlega
franska hugtaki „laïcité“ (e. „secularity“). Með
því er átt við að til sé eitthvert
opinbert rými, sem allir eiga jafnan aðgang að
og þar sem allir eigi sama rétt. Rými þetta
liggur utan við trúna og þangað á
trúin ekki erindi. Þetta á t.d. við um
skóla. Franska ríkið er „laïc“, þ.e.
að það gerir sér far um að tengja sig
ekki við neina trú, enda sé hún einkamál
hvers og eins.
Enginn sem áhuga hefur á sambúð fólks
af ólíkum menningaruppruna en einnig á sambúð
ríkis og trúfélaga má láta
fyrirlestur Blandine Kriegel nk. fimmtudag fara framhjá
sér.
Blandine Kriegel
á að baki merkan fræðimannsferil, var m.a.
nemandi og um langt árabil einn helsti samstarfsmaður
Michel Foucault. Í ritum sínum hefur hún
m.a. sett fram mikilvægar hugmyndir um sögu og hlutverk
ríkisvaldsins, m.a. í bókunum Ríkið
og þrælarnir og Heimspeki lýðveldisins.
Síðustu ár hefur hún einnig starfað
sem sérstakur ráðgjafi Jacques Chirac Frakklandsforseta
í málefnum innflytjenda og er formaður Haut
conseil de l’intégration, ráðgjafanefndar frönsku
ríkisstjórnarinnar um aðlögun fólks
af erlendum uppruna að frönsku samfélagi.
Sama kvöld,
14. apríl, kl. 20.30, heldur hún annan fyrirlestur
um læriföður sinn Michel Foucault í húsakynnum
Alliance française, 0Tryggvagötu
8.
Báðir
fyrirlestrarnir verða á frönsku en enskri þýðingu
verður dreift til áheyrenda, auk þess sem spurningar
og umræður verða túlkaðar jafnóðum
á íslensku.
Aðgangur
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Biography
of Blandine Kriegel
|
maí 2005
 Nýtt
heimilisfang: Tryggvagata 8, sími: 552-3870. Fax:
562-3820.
Historique: <sept
2003 - mai 2004 | sept 2002 - mai
2003 | sept 2001 - mai
2002 | jan - mai 2000 | oct - déc
1999 > |