Velkomin til Alliance Française í Reykjavík
Hér finnur þú upplýsingar um námskeið, starfsemi og menningardagskrá AF.
Veldu úr flokkum hér til vinstri.

Athugið! nýjar tímatöflur fyrir vornámskeið AF september-desember 1999.
Hægt er að skrá sig á námskeið.

Starfsár Alliance Française 1999.

[ október | nóvember | desember ]

o k t ó b e r
föstudaginn 8. 10 : AF kl. 18

mun verða, í salarkynnum Alliance Française, opnun sýningarinnar Skáldsögur/leiðbeiningar. Denis Bouclon, nýr forstöðumaður Alliance Française, mun kynna sýninguna og sjálfan sig fyrir félagsmönnum okkar, vinum, nemendum svo og íslenskum blaðamönnum.

 

 

laugardaginn 9. 10 : Glaumbar, Tryggvagötu 20, kl. 16
Stuðningsmenn íslensku og frönsku liðanna ætla að hittast og horfa á leikinn Frakkland - Ísland á veitingahúsinu Glaumbar. Komið með félagskírteini til að fá afslátt á bjór !

 

 

fimmtudaginn 14. 10 : AF kl. 20 : Forsýning á vegum Alliance Française

Alliance Française verður með forsýningu á kvikmyndinni "Islendingarnir" eftir P.Roturier. 
Um er að ræða heimildarmynd frá árinu 1999 um samskipti íslendings og franskra sjómanna á þvi hundrað ára tímabili sem Frakka sóttu á islensk fiskimið.
Aðstoðarleikstjori kvikmyndarinnar J.Y. Courageux verður viðstaddur forsýninguna.
Myndin er á frönsku og verður sýnd ótextuð.

 

n ó v e m b e r
miðvikudaginn 10. 11 : AF  kl. 21 : Kvikmyndaklúbur : Frakkland vísinda og tækni

Sýndar verða nokkrar stuttmyndir, kynntar og útskýrðar af Fabrice Bosca, vísindafulltrúa Franska sendiráðsins.
Við viljum sérstaklega beina athygli ykkar að þessari einstöku sýningu.
Myndirnar eru á frönsku og eru ótextaðar.

 

 

 

föstudaginn 19. 11 : AF kl. 20 : fyrirlestur um vinstrihreyfinguna í Frakklandi

fluttur af blaðamanni Libération, Eric Aeschimann, fyrirlesturinn verður þýddur á íslensku.

 

 

d e s e m b e r
 föstudaginn 17. 12 : AF kl. 20 : Jólavaka

 
Í ár munum við aftur eiga saman indæla kvöldstund fyrir lágt verð. Nánari upplýsingar verða gefnar upp í Alliance á haustmánuðum. En gleymið ekki að skrá ykkur í tíma: sætafjöldi er takmarkaður

 

laugardaginn 18. 12 : AF  kl. 15: Jólatréskemmtun barnanna

með uppáhalds franska jólasveininum okkar !

 

 

 

Það má reikna með að aðrir dagskrárliðir komi upp á önninni; fylgist með dagblöðunum! Missið ekki af uppfærslu Fedru í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Sveins Einarssonar. Félagsmenn fá afslátt gegn framvísun félagsskírteinis.

Einnig er mögulegt að taka þátt í námskeiðum Alliance Française í París.