Alliance française er það ánægja að bjóða þér á opnun sýningar á málverkum eftir Marie-Sandrine Bejanninn laugardaginn 4. desember kl. 14:30 í húsnæði Alliance française í Tryggvagötu 8. Sýningin er frá 3. til 20. desember.

Opið mánudag til föstudags 13.30-18.00 og 13.00-17.00 laugar- og sunnudaga.

Áður en Marie-Sandrine Bejanninn varð listmálari hafði hún um árabil unnið í auglýsingageiranum sem listrænn stjórnandi og hugmyndastýra. Það er eflaust ástæðan fyrir því þess að hún hefur brennandi áhuga á leik með orð og myndir, þörf hennar fyrir að búa til tengsl, örva ímyndunaraflið. Í verkum sínum blandar hún án afláts saman merkingum og formum sem sækja næringu margvísleg og nánast ósýnileg ummerki hversdagslífsins.
Við fyrstu sýn er raunsæislegt og greinilega afmarkað viðfangsefnið látlaust, nánast natúralískt. Þunn akríláferðin ýtir enn undir þessa tilfinningu. Síðan, þegar nær er komið, birtist innihaldið í öllu sínu veldi. Upp úr því stígur iðandi margbreytileiki, áþreifanlegur og sýnilegur, með blæ sem er nánast súrrealískur. Klippitæknin, sem er notuð í grunninn á málverkunum hennar, segir sína sögu um það hversu fjölbreyttir heimar hennar eru. Rétt eins og maður geymir þvælda minninguna um einstakan dag djúpt í vasanum, þá geymir M.S. Bejanninn í verkunum þetta smáræði sem gleymist svo fljótt og ljær því glænýja merkingu. Þegar orðin í smásögunum eru rifin úr samhengi öðlast þau nýja merkingu; umbúðirnar sem eru notaðar og þeim síðan hent öðlast nýja vídd, þar sem þetta er úrgangur sem kastað hefur verið burt úr samfélaginu ber hann þar með að vitni um þetta sama samfélag... Þegar pappírarnir, jurtirnar eða hlutirnir eru tengd saman á þennan hátt öðlast það nýtt líf. Þegar búið er að punkta niður minnisatriði á pappírana, teikna á þá, rissa þá upp á nýtt fara þeir með okkur yfir í aðra heima, við hliðina á þeim blandast saman krydd, pappírsgyllingar, ljósmyndir,... Ólíkar áferðir blandast saman, litir renna hverjir inn í aðra, orð sprettur af orði. Minningar hennar, ljúfar eða beiskar, enduróma oft í minningum okkar, þegar þær rekja sjálfar sig afhjúpa þær okkur. (Sardína ferðast nafnlaust við hlið sjálflýsandi flugu...bjartsýnir hermenn beina byssum sínum að risavaxinni vespu...rökrænar eða tilviljanakenndar tengingar, efniviðurinn er þarna fyrir hendi...okkar er að spinna sögur út frá þeim!) Þannig virðist efniviðurinn í málverki hennar vera raunveruleiki, en inntakið er í rauninni það sem helst örvar ímyndunaraflið. 
 

Flestir viðfangsefnanna í verkunum sem sýnd eru á þessari sýningu eru fiskar sem eru óður til Íslands. Fjögur málverkanna sækja einkum í þennan efnivið: þau hafa verið notuð í "könnun" meðal innfæddra eða aðfluttra Íslendinga: "hver eru að þínum dómi skilningarvitin fimm (snerting, sjón, lyktarskyn, heyrn og bragð) Íslands?" Þessi orð-vitnisburðir eru tekin upp aftur, og sett á svið, þau segja okkur frá sínu Íslandi, tilfinningum sínum, skynjunum...lykilpersónurnar í íslensku jólahaldi, Grýlubörnin þrettán, eru líka falin í þeim á einkar hugvitsamlegan hátt...

Til að þú skiljir eftir minjagrip á þessari sýningu, þá ert þú líka beðin(n) að miðla þinni sýn á Ísland á "dazibao" efni sem allir geta notað. Athugasemdir um brot úr lífinu, hverfular minninga eða límmiðar eru vel þegnir.
 
 

 

 
L'Alliance française a le plaisir de vous inviter au vernissage de l'exposition de peintures de Marie Sandrine Bejannin qui aura lieu le samedi 4 decembre à 14h30 dans les locaux de l'Af de Reykjavik ( Tryggvagata 8). L'exposition aura lieu du 3 au 20 décembre.
Ouverture du lundi au vendredi 13h30-18h00 Samedi et dimanche 13h00-17h00
 

Avant d'être artiste peintre, Marie-Sandrine Béjannin, 40 ans, a longtemps travaillé pour la publicité en tant que directrice artistique et rédacteur concepteur. Sans doute est-ce de là que Marie-Sandrine Béjannin,tient cette passion des jeux de mots et d'images, ce besoin d’inventer des liens, d’ouvrir des imaginaires. Mêlant sans cesse le sens et la forme, son oeuvre se nourrit des menues traces anodines et multiples du quotidien.
Au premier abord le sujet réaliste, maîtrisé et détouré, est sobre, presque naturaliste. Le traité lisse à l'acrylique renforce ce sentiment. Puis en s'approchant, le fond impose sa présence. Il en émerge une multiplicité foisonnante, tactile et visuelle, auxaccents presque surréalistes. La technique du collage, utilisée pour les fonds de ses tableaux, traduit la variété de ses univers. Comme l’on garde en trophée au fond d’une poche le souvenir froissé d’une journée d’exception, M.S. Béjannin conserve sur ses toiles ces petits riens si vite oubliés et leur offre une nouvelle signification.
Extraits de leur contexte les mots des nouvelles prennent un tout autre sens; l’emballage usé puis jeté acquiert une autre dimension, déchets abandonnés de la société ils en deviennent les témoins... Associés les papiers, plantes ou objets s’offrent une nouvelle vie.Annotés, illustrés, redessinés ils nous entrainent vers d’autres mondes, à leurs cotés se mêlent épices,dorures de papiers, photos,... Les textures s'entremêlent, les couleurs se marient, les mots se répondent. Ses souvenirs tendres ou amers font souvent écho aux nôtres, en se racontant ils nous dévoilent. (Une sardine voyage incognito a côté d’une mouche phosphorescente...des soldats optimistes pointent de leurs fusils une guêpe géante... associations logiques ou hasardeuses, les sujets sont là... à nous d’en rêver l’histoire ! ). Ainsi pendant que l'objet de sa peinture met en scène une réalité apparente, le fond lui, devient support privilégié de l’imaginaire.
 

La plupart des sujets des oeuvres de cette exposition, sont les poissons en hommage à l’Islande. Quatre tableaux en sont particulièrement inspirés : ils ont fait l’objet d’un “sondage” auprès d’Islandais de souche ou d’adoption : “quels sont pour vous les 5 sens (toucher, vue, odorat, ouïe et goût) de l’Islande?”. Ces mots-témoignages sont repris et mis en scène, ils nous racontent leurs Islandes, leurs impressions, leurs sentiments... personnages clés des noëls Islandais, les 13 enfants de Gryla s’y sont eux aussi habilement cachés...

Dans l’optique d’une oeuvre souvenir de cetteexposition vous êtes également invités à confier aussi votre vision de l’Islande sur une toile “dazibao” à disposition de tous. Annotations d'extraits de vie,souvenirs fugaces ou papiers collés seront les bienvenus.