Skólinn Bókasafnið Dagskrá Tenglar Um Alliance á Íslensku en Français

Bókasafn Alliance Française er opið alla virka daga milli klukkan 14 og 18, og laugardaga milli klukkan 12 til 16.

Í bókasafninu eru 7000 bækur, myndbönd, franskar kvikmyndir, bæði nýjar og klassískar og eru margar þeirra með frönskum eða enskum texta. Einnig eru geisladiskar og kassettur með franskri tónlist og upplestri til útláns.

Aðeins félagar AF geta fengið lánað úr bókasafni en öllum er heimilt að skoða bækur og annað á staðnum. Árgjald til félagsins er 4.500 kr. Nemendur Háskóla Íslands og kennarar sem eru í Félagi Frönskukennara greiða 3.500 kr.


Alliance française í Reykjavík hefur ákveðið að víkka út þjónustu við meðlimi félagsins og bjóða þeim upp á þann möguleika að leigja stóra veislusalinn sinn (160m2).
Salurinn hentar vel til ýmissa nota, ss. til að halda fermingarveislur og einkasamkvæmi af ýmsu tagi að degi til. Leigan fyrir salinn er 65.000 kr.; taka þarf salinn frá að minnsta kosti 10 dögum áður en ráðgert er að halda veisluna og gera um það skriflegan samning.
Frekari upplýsingar eru veittar í s. 552 3870 alla virka daga á milli kl. 14:00 og 18:00.