HRAÐLESTIN PARÍS – BRUSSEL

18. OG 19. MAÍ 2004



Þriðjudaginn 18. maí og miðvikudaginn 19. maí verður dagskráin "HRAÐLESTIN PARÍS - BRUSSEL" haldin í Borgarleikhúsinu, en þá verða ný frönsk og belgísk leikrit lesin í - með hraði - í íslenskum þýðingum. Það er franska leikfélagið La Barraca sem stendur fyrir verkefninu, í samvinnu við Borgarleikhúsið, Listahátíð í Reykjavík og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. 



Þriðjudaginn 18. maí verða kynnt tvö verk: Agnes eftir frönsku skáldkonuna Catherine Anne og Eva, Gloria, Lea eftir belgíska höfundinn Jean-Marie Piemme, og daginn eftir verða kynnt verkin Boðun Benoit, eftir Belgann Jean Louvet og Frú Ká eftir franska leikskáldið Noelle Renaude. Leikstjórn er í höndum Kristínar Jóhannaesdóttur, Sigrúnar Eddu Björnsdóttur, Péturs Einarssonar og Steinunnar Knútsdóttur, og það eru leikarar Borgarleikhússins og nemendur leiklistardeildar Listaháskólans sem lesa.



Listræn stjórn verkefnisins er í höndum La Barraca, en einn helsti forvígismaður þess er Ragnheiðar Ásgeirsdóttir. Hraðlestin París - Brussel, þegar frönsk og belgísk verk eru lesin í Reykjavík, er lokaáfangi feraðarinnar, en í mars voru verk íslenskra leikskálda, þeirra Hávars Sigurjónssonar, Hrafnhildar Hagalín, Ólafs Hauks Símonarsonar, Sigurðar Pálssonar og Þorvaldar Þorsteinssonar þýdd og leiklesin í París og Brussel.



Leikritin sem kynnt verða eru ekki lesin í heild sinni, heldur "með hraði" í fjörutíu mínútna dagskrám. Höfundarnir og fleira leikhúsfólk koma hingað til lands til að vera viðstaddir viðburðinn.



Þriðjudaginn 18. maí kl. 17 á Nýja sviðinu



Eva, Gloria, Lea eftir Jean-Marie Piemme. 
Þýðing: Oddný Eir Ævarsdóttir.
Leikstjórn: Sigrún Edda Björnsdóttir.



Agnes eftir Catherine Anne. 
Þýðing: Sigurður Pálsson. 
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir.



Miðvikudaginn 19. maí kl. 17 á Nýja sviðinu



Boðun Benoît eftir Jean Louvet. 

Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson.

Leikstjórn: Pétur Einarsson.



Frú Ká eftir Noëlle Renaude. 

Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir. 

Leikstjórn: Steinunn Knútsdóttir.



Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.



Leikfélagið La Barraca, í samvinnu við Borgarleikhúsið, Listahátíð í Reykjavík og Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. 

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Ásgeirsdóttir í síma 551 19 67.





AÐSTANDENDUR



Þriðjudaginn 18. maí kl. 17 á Nýja sviðinu



Eva, Gloria, Lea eftir Jean-Marie Piemme. Þýðing: Oddný Eir Ævarsdóttir.
Leikstjóri: Sigrún Edda Björnsdóttir. Leikandi: SARA DÖGG ÁSGEIRSDÓTTIR.



Agnes eftir Catherine Anne. Þýðing: Sigurður Pálsson. Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir.


Leikendur; SIGRÚN EDDA BJÖRNSDÓTTIR, JÓHANNA FRIÐRIKA SÆMUNDSDÓTTIR, SNÆFRÍÐUR INGVARSDÓTTIR, KATLA MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR, ELLERT A. INGIMUNDARSON, GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR, EGGERT ÞORLEIFSSON, BIRNA HAFSTEIN, ÓLAFUR STEINN INGUNNARSON, BIRGITTA BIRGISDÓTTIR og ATLI ÞÓR ALBERTSSON.



Miðvikudaginn 19. maí kl. 17 á Nýja sviðinu



Boðun Benoît eftir Jean Louvet. Þýðing: Kristján Þórður Hrafnsson. Leikstjórn: Pétur Einarsson.



Leikendur ELLERT A. INGIMUNDARSON og ORRI HUGINN ÁGÚSTSSON.



Frú Ká eftir Noëlle Renaude. Þýðing: Guðrún Vilmundardóttir. Leikstjórn: Steinunn Knútsdóttir. 



Leikendur: HANNA MARÍA KARLSDÓTTIR, THEODÓR JÚLÍUSSON, ATLI ÞÓR ALBERTSSON, GUNNAR HANSSON, JÓHANNNA FRIÐRIKA SÆMUNDSDÓTTIR, MARGRÉT HELGA JÓHANNSDÓTTIR og ÓLAFUR STEINN INGUNNARSON.