| "Film Noir" Kvikmyndahátíð : | |||||||
| Háskólabíó | Föstud. 26.nóv | 27.nóv | 28.nóv | 29.nóv | 30.nóv | 1.des | 2.des |
| 15:00 | |||||||
| 16:00 | L´Affaire Marcorelle | Inspecteur Lavardin | |||||
| 18:00 | Vivement Dimanche | L´Affaire Marcorelle | |||||
| 20:00 | Le Poulpe | Inspecteur Lavardin | Vivement Dimanche | Scénes de crimes | Le Poulpe | Inspecteur Lavardin | |
| 22:00 | L. 627 | Scénes de crimes | L. 627 | L´Affaire Marcorelle | Scénes de crimes | L. 627 | |
| Háskólabíó | Föstud. 3.des | 4.des | 5.des | 6.des | 7.des | 8.des | 9.des |
| 15:00 | L. 627 | ||||||
| 16:00 | Vivement Dimanche | ||||||
| 18:00 | Garde á Vue | Inspecteur Lavardin | Le Poulpe | Les Marchands de Sable | |||
| 20:00 | Les Marchands de Sable | Garde á Vue | |||||
| 22:00 | Garde á Vue | Les Marchands de Sable | Scénes de crimes | ||||
L.627
- Leikstjóri: Bertrand Tavernier
Með Didier Bezace, Jean-Roger Milo – 1991- 2h25
Rannsóknarlögreglumaður kallar yfir sig skammir yfirmanna sinna eftir að hafa
lýst yfir óánægju sinni með vinnuaðferðir lögreglunnar. Hann er þá látinn skipta
yfir í deild sem sérhæfir sig í fíkniefnum.
Lögregluvarðstjórinn Lavardin – Leikstjóri: Claude Chabrol
Með Jean Poiret, Bernadette Lafont – 1985 – 1h40
Nakið lík þekkts kaþólsks rithöfundar finnst á strönd í Brittaníu. Lavardin
rannsakar m.a. miður geðslega fjölskyldu rithöfundarins (hann hafði átt í
ástarsambandi við ekkjuna skömmu áður). Kaldhæðni hans leiðir til þess að hann
skellur sökinni á mann sem er ekki sá er, fyrir slysni, olli dauða hins
andstyggilega áhrifamanns.
Garde à vue – í varðhaldi - Leikstjóri: Claude Miller
Með Lino Ventura, Michel Serrault – 1981 – 1h25
Það er gamlárskvöld og lögregluvarðstjórinn Antoine Gallian, ásamt aðstoðarmanni
sínum Belmon, yfirheyrir lögfræðinginn Martinaud. Tveimur ungum stúlkum hefur
verið nauðgað og þær svo myrtar og lík þeirra eru nýfundin. Martinaud þekkti
aðra þeirra. Hann reynir fyrst að gera sig breiðan en er fljótur að draga í land
þegar hann áttar sig á því að þar sem hann hefur enga fjarvistarsönnun er hann
efstur á lista grunaðra um glæpinn.
Les marchands de sable –svefnsandur - Leikstjóri: Pierre Salvadori
Með Mathieu Demy, Guillaume Depardieu – 2000 – 1h35
Á litlu torgi í París eru keypt og seld fíkniefni, spilakössum er komið fyrir,
barirnir skipta um eigendur og peningar ganga manna á milli. Ungt fólk, fremur
ómeðvitað um þessi ólöglegu viðskipti, lifir og deyr í þessu umhverfi. Alain,
bareigandi, fylgist með þessu öllu, án þess að skilja né bregðast við, þangað
til daginn sem Marie, ung stúlka, biður hann um hjálp við að finna morðingja
bróður síns.
Scènes de crimes - Glæpavettvangur – Leikstjóri: Frédéric Schoendoerffer
Með Charles Berling, André Dussollier – 1999 -1h40
Nágrenni Parísar í upphafi vetrar. Ung kona, Marie Bourgoin, hverfur skyndilega.
Eina vísbendingin er ferðamannabæklingur sem hefur verið skilinn eftir á
staðnum: Eyjan Máritíus útötuð í blóði. Glæpasveitin í Versölum tekur að sér
málið með lögregluforingjann Fabian og yfirvarðstjórann Gomez í broddi
fylkingar. Leitað er vandlega í hverfinu, nágrannar yfirheyrðir og hugsanlegar
vísbendingar grandskoðaðar. Ekkert kemur þeim á sporið. Nokkrum dögum seinna, á
sama svæði eru tvö lík grafin upp. Annað líkanna er ung ljóshærð kona, eins og
Marie Bourgoin. Fabian rannsakar þá lista yfir einstaklinga sem horfið hafa og
miðar við nákvæm útlitseinkenni. Niðurstaðan: Hugsanlegur raðmorðingi hefur
gengið laus á þessu svæði í nokkur ár. Fyrir Gomez og Fabian er þetta upphaf
píslargöngunnar…
Vivement Dimanche – Loksins sunnudagur -Leikstjóri: François Truffaut
Með Fanny Ardant, Jean-Louis Trintignant – 1983 – 1h55
Maður að nafni Massoulier fær skot í höfuðið í veiðiferð og lætur lífið. Julien
Vercel forstjóri fasteignasölu er ásakaður um að hafa myrt hann. Auk þess að
hafa verið á morðstað eru fingraför hans á bíl Massoulier. Nokkru síðar finnst
Marie-Christine kona Vercel látin en hún var hjákona Massoulier. Frammi fyrir
svo miklum ásökunum ákveður Julien Vercel að flýja og rannsaka málið sjálfur.
Hann fær dygga aðstoð ritara síns Barbara Becker…
Le Poulpe –kolkrabbinn - Leikstjóri: Guillaume Nicloux
Með Jean-Pierre Darroussin, Clothilde Courau – 1998 – 1h40
Adrien Lecouvreur, öðru nafni Le Poulpe, ákveður að fara frá París í fylgd með
kærustu sinni Cheryl. Eftir síðustu samskipti sín við manninn með latexgrímuna
hefur hann þörf fyrir hvíld. En þegar hann kemur til Morsang, litla bæjarins sem
Cheryl kemur frá, verður á vegi hans ný gáta til að leysa. Gröf ömmu og afa
Cheryl hefur verið vanhelguð. Le Poulpe hefur leitina að þeim seku.
L'affaire Marcorelle – Marcorelle- málið - Leikstjóri: Serge Le Péron
Avec Jean-Pierre Léaud, Hélène Surgere, Irène Jacob – 2000 - 1h34
Kaldhæðni örlaganna ræður því að eftir einmanalegt kvöld er François Marcorelle
rannsóknardómari í Chambéry staddur í herbergi ungrar pólskrar stúlku sem hann
hafði hitt á tyrkneskum veitingastað í bænum. Þar fremur hann morð - eða það
heldur hann að minnsta kosti. Að mati vinar hans Georges er þarna hins vegar um
að ræða eina af þessum martröðum sem hann er vanur að fá. Martröðum, sem stafa
af sektarkennd sem hefur nagað hann í gegnum tíðina og sem andstæðingar hans í
réttarsalnum nota gegn honum. En í þetta skipti finnur François Marcorelle að
hann var ekki að dreyma. Og fyrir tilviljun finnur hann sönnun þess einn
eftirmiðdag í myrkvuðu kvikmyndahúsi.