Home Græna ljósið Háskólabíó Wallonie-Bruxelles International Ambassade du Canada Ambassade de France en Islande


- Skólabekkurinn
- Françoise Sagan
- Refurinn og barnið
- Borgin Louvre
- Krummaskuð number one
- Ástarsöngvar
- Þau sem verða eftir
- Upp komast svik
- Nóttin dimm
- C.R.A.Z.Y.

Sýningartímar

á Íslensku en Français


Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 9. sinn dagana 16. til 29. janúar í Háskólabíói.

Á dagskránni eru 10 kvikmyndir: 8 franskar myndir en í ár eru einnig 2 myndir sem ekki eru franskar, en eru á frönsku: önnur belgísk og hin kanadísk. Þessar myndir sýna vel fjölbreytni franskrar kvikmyndagerðar. Hr. Olivier Mauvisseau, sendiherra Frakklands á Íslandi og Hr. Friðrik Rafnsson, forseti Alliance Française í Reykjavík opna kvikmyndahátíðina við sýningu á myndinni “Skólabekkurinn” sem Laurent Cantet leikstýrir, þann 15. janúar kl. 20.00 (eingöngu fyrir boðsgesti): þessi mynd hlaut Gullpálmann 2008 á kvikmyndahátíðinni í Cannes, hún fékk mjög mikið lof dómnefndar og áhorfenda. Myndin sýnir mjög frumlegt sjónarhorn á skólastarfið. Sérstök sýning “spurningar/svör” verður haldin mánudaginn 19. janúar kl. 17.30 fyrir menntaskólanema og kennara.

Eins og fyrr segir, er bryddað upp á þeirri nýjung í ár, að nú eru ekki aðeins franskar myndir á dagskránni, þar eru líka kanadíska kvikmyndin “C.R.A.Z.Y” og frá Belgíu kemur “Niðdimm nótt”. Sérstakar sýningar verða á þessum myndum föstudagskvöldið 16. janúar: “C.R.A.Z.Y” kl. 20.00 (eingöngu fyrir boðsgesti), Frú Anna Blauveldt, sendiherra Kanada verður viðstödd og á miðnætti verður sérstök miðnætursýning á hinni töfrandi mynd Belgans Olivier Smolders, “Niðdimm nótt”.

Annað atriði sem vert er að benda á, er að Luc Jacquet, leikstjóri myndanna “Refurinn og barnið” og “Ferðalag keisaramörgæsanna”, kemur til Íslands í tilefni af kvikmyndahátíðinni og verður viðstaddur sýningu myndarinnar laugardaginn 17. janúar kl. 20.00. Hann ætlar að skoða aðstæður á Íslandi fyrir næstu kvikmynd sína, en það kemur sterklega til greina að hún verði tekin hér á landi. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri!

Lýsing á myndum hátíðarinnar er hér

Dagskrá hátíðarinnar er hér

Miðaverð til félagsmanna í Alliance Française (sýnið félagsskírteinið) og frönskunema er 500 kr.