Les Hospices de Beaune - l'Hôtel Dieu

DAGSKRÁ ALLIANCE FRANCAISE  FERÐ TIL PARÍSAR OG BOURGOGNE
4 - 10 maí 2000
62.000 kr.


Fimmtud. 4.05

Brottför frá Keflavík 07:40 (Flugleiðir)
Koma til Parísar Roissy Charles de Gaulle kl. 13:05

Rúta tekur á móti hópnum á flugvellinum og ekur strax áleiðis til Bourgogne.
Stansað við Fontenay klaustur. 

St Bernard sjálfur stofnaði Fontenay klaustrið (Cistercien munkaregla) árið 1188. Það er í dag á skrá Menningararfs Mannkynsins hjá UNESCO, er eitt fallegasta dæmið rómönsku byggingalistarinnar. Skoðað undir leiðsögn, ef til vill ljós- eða kvikmyndasýning.

Koma til Beaune, sögulegur höfuðstaður Bourgogne héraðsins.

Vínsmökkun (sennilega hjá Bouchard Aîné - háð komutíma)

Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.
Gist í Beaune, Hótel Ibis La Ferme Aux Vins.

Föstud. 5.05.

Skoðunarferð um Beaune, aðalbyggingar skoðaðar.

Beaune, umkringd borgarmúrum, er í dag höfuðstaður vínviðskipta í Bourgogne eftir að hafa verið lengi höfuðstaður Hertoga af Bourgogne. Hôtel Dieu (eitt af þeim fallegustu sem byggt hefur verið, sem einkennist af munstruðum þökum), Cordeliers klaustrið (í dag vínkjallari) og margar aðrar byggingar mynda arfinn frá Miðöldum.

Hadégisverður: frjáls.
Skoðunarferð í rútu um vínsvæðið og stansað í frægum vínkjöllurum.

Château Meursault er fyrir sunnan Beaune, kjallari frá 14. öld.
Château de Clos Vougeot er besta dæmi um áhrif munkanna (cisterciens) á frægð Bourgogne vínanna. Byggingar frá 12. - 14. öld.

Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.
Gist í Beaune, Hótel Ibis La Ferme Aux Vins.

Laugard. 6.05

Skoðunarferð um Suður Bourgogne: vínvegurinn, hellisbústaðir, landbúnaður, miðaldaþorp (Brancion) og rómanska byggingarlístin eins og hún er dýrmætust, oftast með áhrifum byggingameistara frá Lombardi á Ítalíu. Endastöð: Tournus.

Tournus (45 km frá Beaune) er charmerandi borg við Saône ána. Dómkirkjan St Philibert (980) gnæfir yfir þröngar göturnar. Hún er þekkt sem borg antíkverslananna.


Skoðunarferð um borgina, á eftir er boðið í bátsferð.

Pavillon Saône býður uppá bátsferð (ca 4 tíma), siglingu á Saône og svo á Seille-ánni og skurðum, í gegnum skipalyftur. Stansað verður á leiðinni í Seille þjóðgarðinum. Hægt er að borða um borð eða í sveitakrá við La Seille.

Kvöldverður: frjáls.
Gist í Beaune, Hótel Ibis La Ferme Aux Vins.

Sunnud. 7.05

Brottför með rútu frá Beaune til Parísar.

Stansað á leiðinni, t.d. við Arcys/Cure hellir (steinalda hellamyndir) eða við Alesia, þar sem Cæsar sigraði Vercingetorix gaulverja höfðingjann. 

Koma til Parísar.
Gist í París (hótel tilgreint fljótlega)

París
Nathalie sem er gamall Parísarbúi mun leiða ykkur um litrík hverfi borgarinnar.

Þeir sem hafa áhuga á að heimsækja söfn eins og t.d. Louvre eða Eiffelturninn gera það upp á eigin spýtur.


Mánud. 8.05

Bercy hverfið heimsótt: gengið um Daumesnilstræti með rómverska vatnsveitustokka í baksýn og litið er við hjá handverksmönnum. Gengið um skrúðgarða Bercy og Stóra Bókasafnið á bökkum Signu.
Gist í París (hótel tilgreint fljótlega)

 

Þríðjud. 9.05

Latinu hverfið.
Alliance Française í París býður upp á hádegisverð og hanastél.
Eftirmiðdagurinn frjáls.
Gist í París (hótel tilgreint fljótlega)

Miðvikud. 10.05

Brottför frá hótelinu ca. Kl. 11:30
Flug frá Roissy CDG kl. 14:05


ATH! Dagskráin og tímaáætlun getur breyst (t.d. flugáætlunin, skoðunarferðir). Allar breytingar verða tilkynntar í tímanlega.
Nathalie Jacqueminet frönskukennari í Alliance Française og listfræðingur verður leiðsögumaður fararinnar.

 

Innifalið í verðinu: flugið fram og til baka Keflavík-París-Keflavík, rútuferð til Bourgogne or ferðir meðan dvalið er í Bourgogne, gisting og morgunmatur, tveir kvöldverðir í Beaune, dagsverðir í Bourgogne, rútuferð frá París til Roissyflugvallar, flugvallaskattar og leiðsögn.
Þar sem er ekki innifalið er: hádegisverðir, kvöldverðir (utan tvo í Beaune), drykkir, stræto- og neðanjarðarlestaferðir í París.

 

Síðasti innritunardagur er 15. febrúar 2000.



Ferðamiðstöð Austurlands,  Stangarhylur 3A, · P.O.Box 9088,  110 Reykjavík
S: 567 8545 & 587 1919, Telefax: 587 0036