|
Vetrarhátíð - Safnanótt
Föstudaginn 12. febrúar, frá kl. 19.00-24.00 Í Alliance
Française, Tryggvagötu 8, Reykjavík
"Icelandtrain, draumur eða raunveruleiki?"

Alliance Française býður þér að kynnast fyrsta íslenska járnbrautarfélaginu,
Icelandtrain og að leggja járnbrautarteina á leiðina Reykjavík-Keflavík. Í
tilefni af Safnanótt 2010, verður Alliance Française opið frá kl. 19 til
miðnættis, þar sem Etienne de France, ungur, franskur listamaður búsettur í
Reykjavík, sýnir í fyrsta sinn íslenska járnbrautarfélagið, Icelandtrain. Í
tengslum við sýninguna, verður tískusýning í Listasafni Íslands, þar sem verða
frumsýndir 10 einkennisbúningar Icelandtrain fyrir konur og karla. Þessi
sýning er styrkt af Reykjanesbæ og Galleri FOLD.
   
Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á
Íslandi og Græna
ljósið kynna franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin
í 10. sinn dagana 15. til 28. janúar í Háskólabíói.
Opnunarmynd frönsku kvikmyndahátíðarinnar í ár
kemur allri fjölskyldunni til að brosa, en það er gamanmyndin "Le Petit
Nicolas" eða "Nikulás litli", sem var langvinsælasta kvikmyndin í
Frakklandi 2009, með yfir 5 milljónir áhorfenda. Myndin er byggð á
samnefndri persónu sem Sempé og Goscinny, höfundur Astérix, bjuggu til.
Fjölbreytni hefur alltaf verið lykilorð Frönsku
kvikmyndahátíðarinnar, og það verður engin undantekning á því í ár. Þetta
sést bæði á dagskránni, þar sem eru gamanmyndir (Nikulás litli, Ljúfa
Paloma, Það var ekki ég, ég sver það), drama (Verndargripurinn,
Morðkvendi), glæpamyndir (Edrú, Góð lögga, vond lögga), söguleg mynd
(Louise Michel) og heimildamynd (Frumgráturinn). Fjölbreytnin sést ekki
síður landfræðilega, því franskar kvikmyndir einskorðast alls ekki við
landamæri Frakklands: það eru 2 kanadískar myndir í boði og ein mynd eftir
alsírskan leikstjóra. Loks sést fjölbreytnin í myndunum sjálfum: frá
"Hjörtunum" eftir Alain Resnais og "Edrú" eftir Olivier Assayas fyrir
kvikmyndaunnendur til "Nikulásar litla" og "Það var ekki ég, ég sver það"
fyrir alla fjölskylduna ... það eru sem sagt myndir fyrir alla!
Í
ár verða myndir frönsku kvikmyndahátíðarinnar í fyrsta sinn sýndar á
Akureyri, frá 5. febrúar.
Lýsing á myndum hátíðarinnar er hér Dagskrá hátíðarinnar
er hér |
|
Miðaverð til félagsmanna í Alliance Française (sýnið félagsskírteinið) og
frönskunema er 600 kr. Einnig er hægt að kaupa miða á fimm myndir á 4.000
kr.
"Fransí Biskví - franskir fiskimenn við Íslandsstrendur.
Þriggja alda baráttusaga". - Elín Pálmadóttir kynnir nýja og
endurritaða útgáfu einnar merkustu bókar sem nokkru sinni hefur verið rituð um
samskipti Íslendinga og Frakka. Alliance Française, Tryggvagötu 8,
þriðjudaginn 8. desember kl. 20.00 Í samvinnu við Bókaútgáfuna Opna. Á
frönsku og íslensku

Alliance Française og Bókaútgáfan Opna bjóða til bókarkynningar í tilefni af
endurútgáfu og endurritun Elínar Pálmadóttur á bók sinni "Fransí Biskví -
franskir fiskimenn við Íslandsstrendur. Þriggja alda baráttusaga", sem var þýdd
á frönsku árið 2007: "Les pêcheurs Français en Islande : trois siècles de
campagnes ; mythes et réalités" (útg. Thélès) og er nú loksins aftur
fáanleg á íslensku! Elín Pálmadóttir segir frá bók sinni og heimildaöflun.
Kynning á bókinni:
Elín Pálmadóttir er vel kunn á Íslandi. Bók hennar um frönsku sjómennina
hlaut mikið lof á Íslandi og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
þegar hún var fyrst gefin út.
Frönsku sjómennirnir eru fyrir löngu orðnir þjóðsagnapersónur, bæði á Íslandi
og í Frakklandi. Áhrifamikil saga þeirra og fjárhagsleg áhrif á heimaslóðum
sjómannanna er rakin í þessari bók, en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt
sjónarhorn á samskipti sjómannanna við heimamenn er sýnt.
Um Elínu Pálmadóttur:

Elín Pálmadóttir fæddist í Reykjavík árið 1927. Hún starfaði lengst af langri
starfsævi við blaðamennsku og ritstörf, en að loknu háskólanámi vann hún
fyrir utanríkisþjónustuna, þar af tvö ár við íslenska sendiráðið í París.
Hún var jafnframt borgarfulltrúi í Reykjavík um skeið og sat í stjórnum ýmissa
félaga og mörgum nefndum.
Elínu hafa hlotnast margar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. frá
Blaðamannafélagi Íslands árið 1992 og Hinu íslenska náttúrufræðifélagi árið
1993. Hún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1997 og
hlotnaðist Ordre national du Mérite frá franska lýðveldinu árið 1999.
Elín hefur m.a. skrifað bækurnar Gerður ? ævisaga myndhöggvara (1985),
Fransí Biskví (1989), Með fortíðina í farteskinu (1996) og Eins og ég man það
? minningar (2003).
Jólamatur laugardaginn 5. desember kl. 19.30 Alliance
Française í Reykjavik, Tryggvagötu 8

Hið árlega fransk-íslenska jólahlaðborð Alliance Française verður haldið að
Tryggvagötu 8 laugardaginn 5. desember klukkan 19.30. Í ár verður boðið upp á
hlaðborð með þemað norður-suður. Norðan megin verður hangikjöt, villigæs ...
sunnan megin verða ostar, frönsk vín og réttir úr nýjustu matreiðslubók Sigríðar
Gunnarsdóttur: "Sælkeragöngur um París".
Pantaðu strax í síma 552 38 70 kl. 14-18 eða með tölvupósti, alliance@af.is Verð : 4.200 kr (½ flaska af
víni innifalin). Greiðist um leið og pantað er, eða í síðasta lagi 4. desember,
á bankareikning Alliance Française 0137-26-378, kt: 420169-1839.
Athugið ! aðeins 40 sæti.
Með stuðningi franska sendiráðsins, sem við þökkum kærlega fyrir.
Þriðjudaginn 24.
nóvember kl. 20.00 Atelier Art de vivre: "Segðu mér
hver þú ert og ég skal segja þér hvaða vín hentar þér" eftir Valérie de Lescure,
sem kemur sérstaklega frá Frakklandi fyrir þennan viðburð. Staður: Alliance
Française, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík Verð: 2.400 kr. fyrir félagsmenn,
3.500 kr. fyrir aðra. Hringið í s. 552-3870 eða sendið okkur línu alliance@af.is
til að taka frá pláss.

Valérie de
Lescure, blaðamaður og vínsmakkari, kemur sérstaklega frá París til að bjóða
ykkur að finna út hvaða vín hentar ykkur best, með aðstoð bókar sinnar "Segðu mér hver þú ert og ég skal segja þér
hvaða vín hentar þér". Hvort sem þú ert nautnaseggur, sparsamur, ráðvilltur
fyrir framan vín-rekkann, mikil áhugamanneskja um vín o.s.frv., þá velur hún
fyrir þig franskt vín, sem fæst hér á Íslandi, til að smakka! Ekki missa af
þessari ?skemmtilega alvarlegu og alvarlega skemmtilegu? vinnustofu til að
kynnast vínsmökkun á nýjan hátt.
Fjölskylda
Valérie de Lescure eru vínbændur, en sjálf er hún blaðamaður og skrifar um vín,
hún hefur t.d. skrifað í hið virta tímarit "Revue du vin de France". Þar að auki var
henni boðið í Ecole de cuisine Ritz Escoffier til
að kenna vínsmökkun í París. Valérie de Lescure vinnur ennþá við blaðamennsku en
þar fyrir utan tekur hún þátt í að skrifa ýmis rit um vín, þar á meðal Le
Petit Larousse des vins (2002 og 2005), Le
Guide Solar des vins bio (útgáfur 2006 og 2007), nýjasta bókin er Dis
moi qui tu es ...je te dirai quel vin boire, sem hún skrifaði með Lindu
Grabe, vínmeistara, sem kom út í september 2007 hjá bókaútgáfunni Solar.
Hringið í s. 552-3870 eða sendið okkur línu
alliance@af.is til að taka frá
pláss.
Verð: 2.400 kr. fyrir félagsmenn, 3.500 kr.
fyrir aðra.
Þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20.00 og laugardaginn 21. nóvember
kl. 16.00. Kvikmynd: "Pierrot le fou"
eftir Jean-Luc Godard Staður: Bæjarbíói, Strandgötu 6,
Hafnarfirði. Aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn Alliance, sýna þarf
félagsskírteini við innganginn.

Kynnist eða endurnýið kynnin af einni af klassísku myndum franskrar
kvikmyndagerðar, "Pierrot le fou" eftir Jean-Luc Godard (1965).
Þau Ferdinand, eða Pierrot le Fou eins og hann er kallaður, og kærastan hans,
Marianne fara í ævintýraferð um Frakkland, en skuggalegir glæponar eru á hælunum
á þeim. Eitt stærsta meistaraverk kvikmyndasögunnar! Það má enginn missa af
þessari mynd!

Laugardaginn 7. og laugardaginn 14. nóvember, kl.
15.00 Kvikmyndir: "Paris í bíó!" Ókeypis aðgangur. Staður:
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, 6. hæð Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15, 101
Reykjavík
Síðan 26. september hefur verið hægt að sjá hina frábæru ljósmyndasýningu
André Kertész, "Frakkland ? Landið mitt" á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þar eru
sýndar svart-hvítar myndir frá París, bæði frá 3. áratug síðustu aldar en líka
frá þeim áttunda. Alliance Française býður ykkur auka glaðning, að fara á
safnið og sjá 25 stuttmyndir og eina aðeins lengri mynd um París: allar
myndirnar eru með enskum texta.
Dagskráin laugardaginn 7. nóvember:
Tvær stuttmyndir eftir Agnès Varda, "Les dites Cariatides", (1984), 12
mín. "Les fiancées du Pont Mac Donald", (1961), 5 mín.

"Paris, je t'aime", (2006): París og ástin með augum 21
kvikmyndagerðarmanns. Kynnist hverfum Parísarborgar og ástarsögunum sem gerast
þar. Hver mynd er 5-9 mínútur að lengd. Á meðal leikstjóra eru: Gus Van Sant,
Coen-bræður, Wes Craven og Walter Salles.
Dagskráin laugardaginn 14. nóvember:
"Quai Bourbon" (1986), 6 mín: Signa séð með aðstoð ljósmynda eftir Charles
Nègre. "Au Père-Lachaise" (1986), 13 mín: ljóðræn gönguferð á stígum hins
mikilfenglega kirkjugarðs í austurhluta Parísar.  "Rauða blaðran" (1956), 36 mín, eftir Albert Lamorisse:
meistaraverk í flokki barnakvikmynda, sem bæði börn og fullorðnir elska. Ef þú
manst eftir bókinni ?Rauða blaðran: sagan um hann Pascal litla? sem er
myndskreytt af Baltasar Samper, þá máttu ekki missa af myndinni, sem varð
innblástur fyrir bókina. Í París á 6. áratug síðustu aldar, finnur lítill
strákur stóra rauða blöðru bundna við ljósastaur. Þannig byrjar saga vináttu
hans og blöðrunnar, sem eltir litla strákinn af eigin rammleik um götur
Parísar... Myndin hlaut Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið
1957.

http://www.ljosmyndasafnreykjavikur.is http://www.photomuseum.is
Miðvikudaginn 4. nóvember, kl. 16.00. Vísindafyrirlestur: "Áhrif loftslagsbreytinga á
jökla. Gervihnattamælingar" flutt af Etienne Berthier. Staður: Háskóli
Íslands, Askja, salur 367, 3. hæð Ókeypis aðgangur
 Jöklafræðingurinn Etienne Berthier
stjórnar jöklarannsóknum við CNRS. Hann rannsakar hvernig jöklar geta sagt fyrir
um en einnig haft áhrif á loftslagsbreytingar. Undir merkjum
vísindasamvinnuverkefnins Jules Verne (Sendiráð Frakklands og RANNÍS) hefur
hann, ásamt Helga Björnssyni við Háskóla Íslands, unnið síðan 2007 að fjarkönnun
á íslenskum jöklum með gervihnattamælingum til að skilja betur hvernig íslenskir
jöklar bregðast við loftslagsbreytingum. Fyrirlestur Etienne Berthier verður um
þetta samstarfsverkefni hans og Helga Björnssonar. Þetta verkefni var kynnt
fimmtudaginn 29. október í sjónvarpsþættinum Nýsköpun ? íslensk vísindi á RÚV.
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4506441/2009/10/29/ Frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðunni: http://etienne.berthier.free.fr Síðan er á frönsku og
ensku
 
"Hvernig á að tala um
bækur sem maður hefur ekki lesið?" eftir Pierre
Bayard "Opin Bok", Karl Cogard flytur fyrirlestur. Staður: Alliance Française, Tryggvagötu 8 Þriðjudagur 27. október kl.
20.00,

Öfugt við það sem almennt er
talið er vel hægt að eiga líflegar samræður um bók, án þess að hafa lesið hana
og líka, eða jafnvel sérstaklega, við einhvern sem hefur ekki heldur lesið hana.
Þetta er viðfangsefni Pierre Bayard í bók sinni "Hvernig á að tala um bækur sem
maður hefur ekki lesið?" sem bókaútgáfan Minuit gaf út árið 2007 og skók
alþjóðlega bókmenntaumræðu og naut strax gríðarlegra vinsælda. Ekki
missa af kynningu á þessari bók, sem greinir frá mismunandi aðferðum við að lesa
ekki bók, vandræðalegum aðstæðum sem hægt er að lenda í þegar maður þarf að tala
um hana og kynnir aðferðir til að snúa sig út úr vandanum!
Kvikmynd:
"Pickpocket" (Vasaþjófur) eftir Robert
Bresson Staður: Bæjarbíói, Strandgötu 6,
Hafnarfjorður. Þriðjudagur 20. október kl. 20.00 og laugardagur 24. október
kl. 16.00. Aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn Alliance, sýna þarf
félagsskírteini við innganginn.
 Kynnist eða endurnýið kynnin af
einni af klassísku myndum franskrar kvikmyndagerðar, ?Pickpocket? eftir Robert
Bresson (1959). Michel er einförull ungur maður sem dag einn
stelur handtösku af konu, til að ?ráða yfir heiminum? eins og hann segir
sjálfur. Jú, hann vann reyndar bug á hræðslunni, en er fluttur á
lögreglustöðina, þaðan sem honum er síðan sleppt strax aftur
...
Umræður um starfsráðgjöf við Jean
Guichard Staður: Alliance Française, Tryggvagötu
8 Tími: 21. október kl. 13.00 Allir velkomnir

Það er okkur hjá Alliance Française ánægja að bjóða ykkur til fundar við Jean
Guichard, sálfræðiprófessor og sérfræðing í starfsráðgjöf, miðvikudaginn, 21.
október kl. 13.00. Allir eru velkomnir, þetta verður ekki fyrirlestur, heldur
gefst áheyrendum kostur á að spyrja og ræða við Jean Guichard um náms- og
starfsráðgjöf, og kannski sérstaklega að skiptast á skoðunum við hann um þær
aðstæður sem eru á Íslandi í dag. Jean Guichard segir frá reynslu Frakka
af svipuðum aðstæðum þar í landi.
Umræður á íslensku
og frönsku, túlkað á báðum málum
"Finnst þér þetta
fyndið?", Kvöldstund með Hugleiki Dagssyni. Sýning á
teikningum hans stendur til 10. nóvember. Staður:
Alliance Française, Tryggvagötu 8 Þriðjudagur 20. október kl.
20.00. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Fyrsta bók Hugleiks Dagssonar er nýkomin í franskri þýðingu út
hjá Les Editions Sonatine!
Alliance Française býður ykkur að hitta
Hugleik þriðjudaginn 20. október kl. 20.00, þar sem þið getið keypt frönsku
þýðinguna á bókinni hans, sem hann áritar um kvöldið. Verð á bókinni hér hjá
Alliance Française er 2.500 kr. En athugið, það eru aðeins 50 eintök í boði!
Takið strax frá eintak með því að senda okkur tölvupóst á alliance@af.is
Um kvöldið segir
Hugleikur frá skopskyni sínu, gagnrýni og sjálfsgagnrýni og deilum sínum við
bókaútgáfuna Penguin í Englandi.
 Teikningar með franskri þýðingu texta verða sýndar í
Alliance Française frá 20. október til 10. nóvember.
Fyrir
frönskukennara: Boðið verður upp á 30 mínútna kennslu út frá textunum við
teikningar Hugleiks.
Hafið samband við Karl Cogard, karl.cogard@af.is til að fá frekari
upplýsingar.
Yvon le Maho flytur fyrirlesturinn
"Hvernig takast mörgæsir á við umhverfisógnanir og
loftslagsbreytingar?" Staður: Alliance Française,
Tryggvagötu 8 fimmtudaginn 8. október, kl. 20.00

Mörg ykkar sáuð eflaust kvikmyndina "Ferðalag keisaramörgæsanna". Alliance
Française býður ykkur að endurnýja kynnin við hina heillandi keisaramörgæs, sem
og náfrænku hennar, konungsmörgæsina, en báðar þessar tegundir eru í
útrýmingarhættu. Vissir þú til dæmis að konungsmörgæsirnar eru í alvarlegri
hættu ef hitastig yfirborðs sjávar hækkar örlítið, jafnvel innan við hálfa
gráðu? Þetta uppgötvaði vísindaleiðangur Yvons le Maho nýlega, en það er
einmitt hann sem heldur einstakan fyrirlestur í Alliance Française fimmtudaginn
8. október um þetta efni: "Hvernig takast mörgæsir á við umhverfisógnanir og
loftslagsbretyingar?".
Yvon le Maho er virtur um allan heim fyrir vísindarannsóknir
sínar og er einn af helstu sérfræðingum heims um umhverfismál á
heimskautasvæðunum. Hann er forstjóri rannsókna hjá CNRS
(Vísindarannsóknamiðstöð Frakklands), auk þess sem hann er meðlimur í frönsku
vísindaakademíunni. Hann hefur rannsakað konungsmörgæsirnar í mörg ár, en á
starfsferli sínum hefur hann alltaf lagt mikla áherslu á að vekja fólk til
meðvitundar um líffræðilega fjölbreytni.
Yvon le Maho er forseti Vísindaráðs Frakklands um þjóðararf náttúrunnar og
líffræðilega fjölbreytni sem er ein stofnana Ráðuneytis umhverfismála og
sjálfbærrar þróunar í Frakklandi, einnig er hann forseti Frönsku
heimskautarannsóknarnefndarinnar. Hann hefur verið ráðgjafi nokkurra
vísindakvikmynda um mörgæsir, þeirra á meðal "Manchots sous haute
surveilance".
Fyrirlesturinn, sem er ætlaður öllum aldurshópum, verður fluttur á frönsku og
túlkaður á íslensku.
Alliance Française í Reykjavík stendur fyrir komu Yvon le Maho til Íslands
með stuðningi Franska sendiráðsins á Íslandi, Aðalskrifstofu Alliance Française
í Bandaríkjunum og skrifstofu CNRS Bandaríkjanna og Kanada í Washington.
Sýningin "Orka, hvaða valkosti eigum við á morgun?" Upplýsingaplaköt
með ljósmyndum og sýning kvikmyndarinnar "HOME" eftir Yann Arthus-Bertrand (á
frönsku). Staður: Alliance Française, Tryggvagötu
8 Frá miðvikudegi 7. til mánudags 19. október.
Bílakirkjugarður í Saint-Brieuc, Côtes d'Armor, Frakklandi. Ljósmynd
Yann Arthus-Bertrand
Listin að lifa - vinnustofa "Verði
ykkur að góðu" - Slow Food kvöld Staður: Alliance Française, Tryggvagötu 8 Þriðjudaginn 29. september
kl. 20 Á frönsku og íslensku, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.

Hefur þú heyrt talað um Slow Food? Í kjölfar hraðrar útbreiðslu
"fast food" byltingarinnar spratt upp félagsskapur í Evrópu sem nefnist "slow
food". Í stuttu máli hratt stöðlun í matvælaframleiðslu og aukin útbreiðsla
næringarsnauðs og einsleits skyndibitafæðis þessari þróun af stað. Hópur fólks,
með Ítalann Carlo Petrini í broddi fylkingar, kom af stað grasrótar hreyfingu
sem í dag á meðlimi í rúmlega 100 löndum, þar á meðal á Íslandi og í Frakklandi.
Megin markmið Slow Food er að auka meðvitund fólks um mikilvægi matarmenningar,
þekkingar, hefðar og landfræðilegs uppruna matvæla.
Þriðjudaginn 29. september, ætlar Dominique Plédel Jonsson, formaður
deildarinnar á Íslandi, að koma til okkar í Alliance Française og kynna fyrir
okkur þennan lífsstíl, hvað er á döfinni í Slow Food á Íslandi og segja okkur
frá því sem er á dagskránni hjá Slow Food í Frakklandi.
www.slowfood.fr www.slowfood.is http://terramadredoc.blogspot.com/2008/10/terra-madre-2008-official-documentary.html
Kvikmyndatónleikar, "Duel" eftir Steven
Spielberg, Olivier Mellano leikur undir. Í samvinnu við
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík og Franska sendiráðið á Íslandi.
Staður: Iðnó. Sunnudaginn 20. september kl. 18 og mánudaginn 21.
september kl. 20 Miðasala á staðnum. Félagsmenn Alliance fá 20% afslátt,
sýna þarf félagsskírteini.

Í tilefni af Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, efna
Alliance Française og Franska sendiráðið á Íslandi til kvikmyndatónleika:
Einvígið (Duel), eftir Steven Spielberg (Bandaríkin, 1971) með Olivier
Mellano. Frá
árinu 1995, hefur Olivier Mellano unnið með þekktustu popp-rokk tónlistarmönnum
Frakklands, eins og t.d. Dominique A., Miossec, Laetitia Sheriff, Françoiz
Breut... Hann semur einnig kvikmynda- og leikhústónlist og hefur samið þrjú
kvikmyndatónverk, þar á meðal við fyrstu sjónvarpsmynd Stevens Spielberg,
Einvígið (Duel).
Einvígið (Duel) segir sögu David Mann, sem fer akandi þvert yfir
Kalíforníu. Á leiðinni reynir hann að fara fram úr flutningabíl sem hindrar hann
í að halda ferð sinni áfram, hægir á sér og tekur hann á taugum. Einvígið
(Duel) er þögul mynd, full af óvissu og spennu, sem hentar einstaklega vel
fyrir kvikmyndatónleika. Olivier Mellano nálgast þennan heillandi eltingaleik
með orku, sem er full af sprengikrafti rokksins og magnar upp ólgu og
skringileika myndarinnar.
http://www.youtube.com/watch?v=Pqrgg3BwFRw
Kvikmynd: "L'Année dernière à Marienbad" Staður: Bæjarbíó, Strandgötu 6,
Hafnarfirði. Þriðjudaginn 15. september kl. 20 og laugardaginn 19. september
kl. 16. Aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn Alliance, sýna þarf félagsskírteini
við innganginn.
Kynnist eða endurnýjið kynnin af einni af klassísku myndum franskrar
kvikmyndagerðar, "Í Marienbad í fyrra" (L'Année dernière à Marienbad) eftir
Alain Resnais (1961). Á gömlu lúxus hóteli, reynir ókunnugur maður að freista
giftrar konu að fara burt með sér ... og minnir hana á samskiptin sem þau höfðu
átt árið áður í Marienbad. En, jafnvel þó að maðurinn virðist heiðarlegur, þá
man konan alls ekki eftir honum.
Þessi mynd fékk Gullljónið á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 1961.
Dagur tileinkaður Charcot - Catherine
Bouchara flytur fyrirlestur, "D'un Pourquoi pas? à
l'autre, Jean-Martin Charcot", á frönsku og túlkað á íslensku Staður:
Alliance Française, Tryggvagötu 8. Þriðjudaginn 15. september, kl.
20. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Þann 16. september 1936 fórst franski leiðangursstjórinn og landkönnuðurinn
Jean-Baptiste Charcot með allri áhöfn á rannsóknaskipinu Pourquoi Pas? út af
Mýrum í Borgarfirði utan eins, sem komst lífs af. Hann átti þá að baki langt og
merkilegt rannsóknarstarf á suður- og norðurheimsskautunum ásamt mönnum sínum.
Til að minnast þessa merka vísindamanns, landkönnuðar og Íslandsvinar standa
Alliance Francaise og Háskóli Íslands árlega að fyrirlestri um forvitnilegar
rannsóknir sem unnar eru í anda Charcot. Í ár kemur Catherine Bouchara,
geðlæknir á barna- og unglingageðdeild Salpêtriêre í París. Catherine
Bouchara ætlar að kynna okkur líf og starf Jean-Martin Charcot, föður
leiðangursstjórans Charcot, einn af upphafsmönnum nútíma geðlækninga. Hún ætlar
að segja okkur frá sambandi þeirra feðga, mikilvægustu framlögum J.-M. Charcot
til geðlækninga og afhjúpar einnig samband Charcot eldri við Freud, sem þá
stundaði nám í París. Fyrirlesturinn fer fram á frönsku og verður túlkaður á
íslensku, en einnig verða sýnd nokkur atriði úr heimildamynd Catherine Bouchara
"Jean-Martin Charcot, maður listarinnar" ("Jean-Martin Charcot, l'homme de
l'art").
Í samvinnu við Jörund Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði í Háskóla Íslands og formann stjórnar Háskólaseturs Suðurnesja.
ágúst 2009
"Franskir sjómenn við Íslandsstrendur"
sýning opnuð í Alliance Française föstudaginn 14. ágúst kl. 18:00- kl. 20:00.
Alþekkt er bók Pierre Lotis "Pêcheurs d'Islande", frásögn af sjómönnum frá Bretagnaskaga í Frakklandi þar sem Íslandi er lýst sem mjög framandi landi fyrir franska lesendur. En þessir frönsku sjómenn komu Íslendingum ekki síður undarlega fyrir sjónir.
Tilgangurinn með þeirri sýningu sem nú hefur verið sett upp er að bregða ljósi á þessi samskipti frá hlið Íslendinga. Sýningin er afrakstur umfangsmikillar vinnu Maríu Óskarsdóttur, sem hefur um árabil safnað munnlegum og skriflegum heimildum og ljósmyndum um þetta merkilega efni.
Sýningin samanstendur af myndasýningu, 18 sýningarspjöldum, 64 frásögnum af samskiptum milli Íslendinga og frönsku sjómannanna, hvernig þeir töluðu saman, hjálpuðust að, voru tortryggnir í hver annars garð og bundust loks vinaböndum sem eru orðinn hluti af sameiginlegri sögu þjóðanna tveggja.
Sýningin í Alliance Française stendur til 5. september. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Nánari upplýsingar í síma 5523870
|
Skalasafn::
sept 2008 - maí 2009 |
sept 2007 - maí 2008 |
sept 2006 - maí 2007 |
sept 2005 - maí 2006 |
sept 2004 - maí 2005 |
sept 2003 - maí 2004 |
sept 2002 - maí 2003 |
sept 2001 - maí 2002 |
jan - maí 2000 |
okt - des 1999
|