Skólinn Bókasafnið Dagskrá Tenglar Um Alliance á Íslensku en Français
 

Franska "à la carte" í Alliance Française:

Næstu námskeið: frá 16. janúar til 16. apríl 2012.

Skráning í síma 552-3870 eða alliance@af.is

Hægt er að skrá sig á námskeið hér.  

Hefurðu einhvern tímann lært eitthvað í frönsku? Pantaðu þá tíma hjá okkur í ókeypis ráðgjöf til að vita nákvæmlega hvaða námskeið hentar þér.

Stúdentar og atvinnulausir fá 10% afslátt af námskeiðsgjaldi. Nemendur okkar geta fengið lánaðar bækur, DVD-myndir og geisladiska af safni okkar, auk þess sem þeim er boðið að taka þátt í öllum viðburðum Alliance Française.



Námskeið sem henta þér:

Ástæðurnar fyrir því að fólk langar til að læra frönsku eru fjölbreyttar. Flesta langar til að læra frönsku vegna vinnu sinnar, til að stunda nám í Frakklandi eða einfaldlega ánægjunnar vegna og til að kunna betur að meta franskan lífsstíl og menningu.

Alliance Française býður upp á frönskunámskeið fyrir alla, allt frá byrjendum til þeirra sem lengra eru komnir og vilja bæta við sig. Nemendur okkar fá þjálfun í talaðri jafnt og ritaðri frönsku. Á námskeiðum okkar er fylgt Evrópustöðlum um kennslu í erlendum tungumálum (frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni: http://www.coe.int/T/DG4/Portfolio/documents/cadrecommun.pdf)

Kennararnir eru franskir og íslenskir, allir með kennsluréttindi og áralanga reynslu af því að kenna frönsku hérlendis.

Menntamálaráðuneyti Frakklands býður upp á próf til að hægt sé að meta kunnáttu nemenda í frönsku, en þessi próf eru t.d. skilyrði fyrir inngöngu í háskóla í Frakklandi og eru viðurkennd á alþjóða vettvangi. Þessi próf eru: Diplôme d'Etudes en Langue Française (DELF) og Diplôme Approfondi de Langue Française (DALF). Alliance Française í Reykjavík er eini staðurinn á Íslandi þar sem hægt er að taka þessi próf.

Sá (eða sú) sem lærir frönsku í Alliance Française kemst í beint og milliliðalaust samband við franska tungu og menningu, því allir sem læra frönsku hjá okkur hafa aðgang að ýmsum viðburðum sem skipulagðir eru á vegum félagsins í hverjum mánuði.


 3 námsannir á ári:

Hér í Alliance Française í Reykjavík skiptum við skólaárinu í 3 námsannir: haustönn (frá september til desember), vorönn (frá janúar til mars) og stutta sumarönn (frá maí til júní). Námskeiðin á haust- og vorönn eru 13 vikur, og á sumarönninni eru þau 6 vikur.


Að skrá sig í Alliance Française : Næstu námskeið: frá 16. janúar til 16. apríl 2012.

  • Í Tryggvagötu 8, 2. hæð, 101 Reykjavík, þriðjudaga til laugardaga, frá kl. 14 til 18.
  • Með því að senda tölvupóst til okkar alliance@af.is
  • Í síma 552 3870 frá kl. 14 til 18, þriðjudaga til laugardaga.

    1/ Almenn frönskunámskeið: Fyrir alla, jafnt byrjendur og þá sem eru með grunnþekkingu eða meira í frönsku.

    Nýtt á námskeiðunum okkar! Í janúar 2011 byrjuðum við að nota nýjar kennslubækur, nýkomnar úr prentsmiðjunni: Version Originale (2010), geisladiskur og DVD diskur fylgja með bókinni, til að gera frönskunámið ennþá skemmtilegra!

Við fylgjum Evrópustöðlum um kennslu í erlendum tungumálum, en þar er tungumálakennslu skipt niður í þessi 6 stig:

1. A1: fyrstu kynni af tungumálinu, uppgötvun.
2. A2: getur bjargað sér í flestum daglegum aðstæðum.
3. B1: sjálfbjarga á tungumálinu.
4. B2: lengra kominn.
5. C1: talar reiprennandi.
6. C2: tvítyngdur.

Námskeiðin okkar fylgja þessum stigum, F1 (Français 1) er fyrri helmingur A1, F2 er seinni helmingurinn af A1, F3 og F4 ná yfir A2 o.s.frv. Hvert námskeið varir í 13 vikur, kennt er tvö kvöld í viku, 90 mínútur í hvert skipti, samtals 39 klukkustundir. Kennsluefnið sem við notum heitir Version Originale og Reflets, en það byggir á kennslubók, verkefnabók og mynd- og hljóðefni.

Námskeiðin okkar hjá AF

  Samsvarandi Evrópustaðall

  Lengd 

 Próf

F1

A1 fyrri hluti

39 klst

námsmat Alliance Française

F2

A1 seinni hluti

39 klst

DELF A1

F3

A2 fyrri hluti

39 klst

námsmat Alliance Française

F4

A2 seinni hluti

39 klst

DELF A2

F5

B1 fyrri hluti

39 klst

 námsmat Alliance Française

F6

B1 seinni hluti

39 klst

DELF B1

F7

B2 fyrri hluti

39 klst

námsmat Alliance Française

Til að taka dæmi, eftir að hafa lokið F1 námskeiði, hefur þú náð nægri þekkingu í frönsku til að:

- tala um sjálfa(n) þig á einfaldan hátt, 
- hafa einföld samskipti við aðra: heilsa, kveðja o.þ.h.
- samþykkja eða afþakka eitthvað,
- biðja um aðstoð, útskýringar,
- fá einfaldar upplýsingar
- fylla út eyðublöð, skráningarblöð ...
- kaupa í matinn, 
- panta á veitingastað,
- skilja og taka þátt í einföldum aðstæðum í daglegu lífi.

Stundatafla:

Á mánudags- og miðvikudagskvöldum:

Mán

Mið

18:15-19:45

F1

F3 F2 fullt

F1 fullt

F3

F2 fullt 

20:00- 21:30

F1 fullt

 

F5 F2 fullt

F1 fullt

F5

F2 fullt 

 Á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum:

þri

Fim

18:15-19:45

F1 fullt

F6

-

F1fullt

F6

-

20:00- 21:30

F4

F8

Samtals lengra

F4

F8

Samtals milli.

 

2/ Samtalsnámskeið: Fyrir þá sem tala svolítið í frönsku og langar til að æfa sig við notalegar aðstæður! Spjallaðu á frönsku yfir kaffibolla um eitthvað í daglegu lífi, út frá texta, bíómynd, hlutverkaleik... Hvert námskeið varir í 13 vikur, samtals 26 kennslustundir.

Næstu námskeið: frá 17. janúar 2012.

2 hópar: millistig á fimmtudagskvöldum kl. 20.00-21.30,  og lengra á þriðjudagskvöldum kl. 20.00-21.30.

3/ Einkatímar: sendu okkur línu á alliance@af.is eða hringdu í síma 552 3870 og pantaðu tíma hjá okkur til að fá ráðleggingar.



4/ Námskeið fyrir börn: Hópur 4 til 6 ára barna heitir "Tumi þumall" og hópur 6 til 9 ára heitir "Júníor klúbburinn". Hvert námskeið varir í 13 vikur, samtals 26 kennslustundir. Börnin læra frönsku í gegnum leik: hlutverkaleiki, söng, leikbrúður, bíómyndir... Elsti hópurinn, frá 9-13 ára, lærir líka frönsku á skemmtilegan hátt: í gegnum tónlist, bíómyndir, leikrit...

Við bjóðum bæði upp á námskeið fyrir börn sem hafa aldrei lært frönsku og líka þau sem tala frönsku. Frístundakortið gildir hjá Alliance Française.

Næsta námskeið byrjar 21. janúar 2012.

Kennari barnanna er frönsk-íslensk. Börnin læra tungumálið um leið og þau vinna ákveðið verkefni og finnst þar af leiðandi þau ekki vera að læra á sama hátt og í skólanum. Þess vegna býður Alliance Française í Reykjavík börnum frá unga aldri að kynnast franskri tungu og menningu á sama hátt og þau læra móðurmálið. Í hverri kennslustund er unnið með afmarkað verkefni sem leiðir til kennslu fyrirfram ákveðinna atriða, t.d. á aðventunni skreyta börnin jólatré með kennaranum sínum, sem nýtir þetta tækifæri til að kenna þeim litina, form hluta, staðsetningu (uppi, niðri, hægri vinstri o.s.frv.) á frönsku. Annað dæmi er "Le petit café de l'Alliance" þegar börnin buðu foreldrum sínum á "kaffihús" og lærðu um leið að taka á móti fólki á frönsku, taka við pöntun og að biðja um það sem vantaði.
Verkefni hvers hóps eru að sjálfsögðu mismunandi og henta aldri barnanna í hverjum hópi.
Í lok námskeiðsins, hafa börnin náð getustigi A1.1 samkvæmt Evrópustöðlum um tungumálakennslu.