|
QUESTIONS POUR UN CHAMPION, spurningaleikur frönsku
sjónvarpsstöðvarinnar France 3, rekur upphaf sitt til ársins 1988 og
hefur í áranna rás eignast miljónir dyggra áhorfenda. Almenn þekking,
snör viðbrögð og létt lund eru lykillinn að góðu gengi í þessum
sjónvarpsleik.
Nú sem oftar leita stjórnendur út fyrir landsteinana eftir þátttakendum
í næstu umferð á alþjóðegum nótum. Þetta er í annað sinn sem Íslendingum
býðst þátttaka. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram verða að hafa vald á
franskri tungu. Að þessu sinni verður borið niður í eftirtöldum 10
löndum:
|
Kamerún, Kína,
Stóra-Bretlandi, Gvatemala, Ungverjalandi, Íslandi, Ítalíu,
Nýja Sjálandi, Óman og Túnis |
Valdir verða fjórir frambjóðendur frá hverju landi. Þeir skulu vera
ríkisborgarar viðkomandi lands og búsettir þar. Þeir verða að vera
orðnir 18 ára, búa yfir góðri almennri þekkingu
og hafa vald á franskri tungu.
Miðvikudaginn 7. apríl 2004 kl. 20 fer fram undankeppni í húsnæði
Alliance française í Reykjavík. Að henni lokinni verða fjórir
sigurvegarar boðnir til Parísar í eina viku,
dagana 1. til 8. maí næstkomandi. Ferðir, gisting og matur eru að
sjálfsögðu á kostnað gestgjafa. Ýmislegt óvænt og skemmtilegt verður þar
einnig á dagskrá. Mikið ævintýr
í vændum!
TAKIÐ EFTIR
Þið sem eruð 18 ára og eldri, vel að ykkur og hafið gott vald á franskri
tungu,
að auki íslenskir ríkisborgarar, búsettir á Íslandi, hvernig væri að
gerast sérlegir
sendiherrar lands ykkar í París?
Innritið ykkur strax í dag. Nálgist
umsóknareyðublöð hjá:
Upplýsingar og innritun
Alliance Française í Reykjavík
Tryggvagötu 8
B.O. box 921
121 Reykjavík
sími 552 38 70
alliance@af.is |