Mál og menning

Eff ehf.

Eymundsson

Bergvík ehf.

Rúv

Háskolabío

Rás 2

Offset

Icelandair

Filmundur

Ambassade de France en Islande

Frönsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói

  04/02 05/02 06/02 07/02 08/02 09/02 10/02 11/02 12/02 13/02
Stupeur et tremblements / Undrun og skjálfti                    
Le peuple migrateur
Farfuglar
18:00
20:00
18:00
20:00
18:00
20:00
13:45
15:45
20:00
15:00
20:00
18:00 20:00 18:00 17:45 17:00
20:00
Être et avoir / Að vera og hafa   18:00     13:40     22:30 22:30  
Le mystère de la chambre jaune
Leyndardómar gula  herbergisins
18:00     20:00 17:45          
L'auberge espagnole / Evrópugrautur 17:40 22:00 20:00 22:15 15:30
22:30
20:00 18:00 22:00 20:00  
Reines d'un jour / Óhappadagur 22:30     14:00     22:00      
Mademoiselle / Fröken   20:00   15:45            
S 21 Drápsvél rauðu Khmeranna
S 21 La machine de mort Khmer
    18:00     22:00        
L'adversaire / Óvinurinn 22:00 22:15 22:20 17:30 22:00 17:30 22:30 18:00 22:20  
Bon voyage / Góða ferð                    
La faute à Voltaire / Voltaire að kenna           22:30        

 

Undrun og skjálfti
Stupeur et tremblements

Leikstjóri Alain Corneau, 2003. 107 mín.
 
Gamanmynd eftir Alain Corneau sem hlotið hefur mörg alþjóðleg verðlaun. Myndin er byggð á metsölubók Amélie Nothomb sem komið hefur út í íslenskri þýðingu Guðrúnar Vilmundarsdóttur Amélie, ung frönsk kona af japönskum ættum snýr aftur til Japan, þar sem hún upplifir hið margslungna og stundum yfirmáta skipulagða og flókna samfélag. Hún á erfitt með að sætta sig við það en að lokum tekst henni að sigrast og snúa hlutunum sér í hag
 
Informations/artwork : http://www.wild-bunch.com
 


Heimur farfuglanna
Le peuple migrateur
 
nýjasta meistaraverk Jacques Perrin: Heimur farfuglanna - Le Peuple migrateur
 
Leikstjóri: Jacques Perrin.
Handrit: Stéphane Durand ogJacques Perrin. 
Kvikmyndatökumenn: Michael Benjamin, Sylvie Carcedo-Dreujou, Laurent Charbonnier, Luc Drion, Laurent Fleutot, Philippe Garguil, Dominique Gentil, Bernard Lutic, Thierry Machado, Stéphane Martin, Fabrice Moindrot, Ernst Sasse, Michael Terrasse og Thierry Thomas, Klipping: Marie-Josèphe Yoyotte. 
Tónlist: Bruno Coulais. Frönsk. Sony Pictures Classics. Sýningartími: 98 mínútur. 
 
WITH: Jacques Perrin (narrator) and puffins, sandhill cranes, pelicans, ducks, Canada geese, snow geese, European white storks, bald eagles, albatrosses, penguins, turtledoves, black-necked swans, robins, Arctic terns, egrets, macaws and black-headed ibises.
Jacques Perrin, einn virtasti kvikmyndagerðarmaður og leikari Frakka, hefur að undanförnu gert garðinn frægan með frábærum og vinsælum náttúrulífsmyndum. Er skemmst að minnast Le Peuple Singe Singe – Aparnir, og Microcosmos – Skordýrin, sem naut mikilla vinsælda hér sem annars staðar. Nú er röðin komin að langþráðustu vinum okkar Íslendinga, farfuglunum, risavöxnustu áskorun Perrins til þessa. Til að gera stórvirkið Heim farfuglanna mögulegt, kallaði Perrin til liðs við sig fimm gengi 450 kvikmyndagerðarmanna og annara fagmanna. Þar af 17 flugmenn og 14 kvikmyndatökumenn, til að fylgja eftir leyndardómsfullu ferðalagi farfuglanna á langflugi þeirra heimshornanna á milli. Hóparnir spanna 40 lönd í öllum heimsálfum, með viðkomu á jafn ólíkum og fjarlægum stöðum og Eiffelturninn, Monument Valley og eyjan Skrúður; Sífreri suðurskautslandsins og sígrænir regnskógarnir umhverfis Amasonfljótið.
Til að gera kvikmyndina framkvæmanlega var tjaldað til öllum hugsanlegum tæknibúnaði og tækjum: Flugvélum, svifflugum, loftbelgjum, þyrlum, sérsmíðuðum tökuvélum og aðdráttarlinsum sem er beint framan að fuglunum úr öllum áttum, ofan þeirra og undir þeim á flugi í háloftunum sem á jörðu niðri.
Árangurinn er stórbrotin og hrífandi fögur mynd sem opnar augu áhorfandans fyrir ólýsanlegum undrum náttúrunnar.
 
Heimur farfuglanna hefur hlotið fjölda verðlauna, m.a:
César – Fyrir klippingu.
Gagnrýnendasamtaka fjölmiðla í Boston – Fyrir bestu kvikmyndatöku.
Golden Reel – æðstu verðlaun hljóðmanna.
 
Þá hefur myndin verið tilnefnd víðsvegar, m.a. til Óskarsverðlaunanna, Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna, ofl. ofl.
 
 Heimur farfuglanna hefur hlotið einróma lof um allan heim:
 
BBC Films ****
Eye Weekly ****
Rolling Stone *** ½ 
Roger Ebert ***
 
Leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Jacques Perrin
 
Leikstjórinn, handritshöfundurinn, framleiðandinn, leikarinn og kvennagullið Jacques Perrin, hefur verið áberandi í evrópskum kvikmyndaheimi allt frá því á 6. áratugnum. Perrin skapaði sér fyrst nafn í heimalandinu Frakklandi, lék m.a. á sviði í París og síðan tóku kvikmyndirnar við árið 1957. Í framhaldi af velgengni í verkum á borð við La Peau de l’ours, hélt Perrin til Ítalíu þar sem hann lék á móti Claudiu Cardinale í Stúlkunni með ferðatöskuna (’60), eftir Valerio Zurlini. Árið 1966 vann Perrin til verðlauna fyrir leik sinn í mynd Vittorios de Seta, Nánast maður. 
Perrin er íslenskum kvikmyndahúsgestum minnisstæður fyrir leik í Les Demoiselles de Rochefort (‘67), undurfagurri mynd Demys þar sem systurnar Catherine Deneueve og Francoise Dorleac komu einnig við sögu. Þá ættu menn að minnast hans sem Toto (eldri) í Paradísarbíóinu – Cinema Paradiso (’89). Alls hefur hann leikið í rösklega 100 myndum.
Perrin hóf nýjan feril sem kvikmyndaframleiðandi árið 1969, fyrsta verkið var engin önnur en Z, eftir Costa-Gavras. Þá var hann einn af bakhjörlum Óskarsverðlaunamyndarinnar Svart og hvítt í lit (’76). Meðal annara mynda sem Perrin hefur framleitt má nefna La guerre d’Algerie (’72), Hors la vie (’91) og hina stórkostlegu heimildarmynd, Microcosmos (’95). Hún kveikti áhuga hans á heimildarmyndum og leikstjórn en Heimur farfuglanna - Le Peuple migrateur (00), er einmitt fyrsta verk þessa fjölhæfa manns á því sviði.
Um þessar mundir er Perrin að undirbúa tökur á næsta verkefni, sem ber nafnið L’ 
Empire du milieu du sud.
 
Jacques Perrin og hans fólk ferðaðist víða um veröld til að fylgjast með ferðum hinna fjölbreytilegustu farfugla, m.a.:
 
Land Fuglategund:
Ísland (Skrúður) Lundi, súla, langvía
Ísland (Jökulsárlón) Himbrimi, skúmur, kría, grágæs, æðarfugl, ofl.
Bretlandseyjar Helsingi
Frakkland (Bois-Roger) Endur og gæsir
New York fylki Margæs
Norðurheimskautið Albatross og mörgæs
Kenía, Masaï Nashyrningsfugl, ernir
Spánn Doðri
Frakkland (Normandy) Trönur og storkar
Kanada (Blyoteyja) Snæugla, blesgæs
Senegal: Hvítir pelíkanar
Andesfjöllin Kondór
Spámm (La Mancha) Starri
Spánn (Extremadure) Storkur, skógardúfur, trönur
Perú Arnpáfi
 

vera og hafa
Être et avoir

Heimildamynd
Leikstjóri: Nicolas Philibert

Hlaut Césarinn 2003 fyrir bestu klippingu.

Enn finnast í Frakklandi skólar þar sem börn, frá 3ja til 10 ára aldurs, sitja saman í kennslustofu og njóta leiðsagnar eins og sama kennara. Sum eru óframfærin, önnur opin 
en þótt hópurinn sé sundurleitur, deila þau daglegum kjörum í sátt og samlyndi.
Þessi mynd var tekin í einum slíkra skóla í hjarta Auvergne héraðs. 

http://chipsquaw.free.fr/etreetavoir/


Leyndardómar gula herbergisins
Le mystère de la chambre jaune

Leikstjóri Bruno Podalydés, 2003. 118 mín. 
    
 
Frumleg gamansöm spennumynd í anda Agötu Christie. Eftir að tilraun hefur verið gerð til að myrða unga og fallega konu koma blaðamaður, ljósmyndari og rannsókarlögreglumaður til að rannsaka málið.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2003
 
Artwork : www.wildbunch.biz
 


Evrópugrautur
L'auberge espagnole

 
Leikstjóri: Cédric Klapisch, 2002 . 122 mín.
Gamansöm mynd um ungt fólk frá ólíkum löndum sem kemur til Barcelona og leigir saman íbúð. Smátt og smátt kynnist það hvert öðru þar sem öllu ægir saman - ólíkum menningarheimum og viðhorfum og sambúðin verður hin skemmtilegasta. Myndin er skrýdd úrvals leikurum, s.s. Audrey Tautou (Amélie Poulain) og Judith Godréche (The Man in the Iron Mask). 
 
Artwork : www.wildbunch.biz
 


Óhappadagur
Reines d'un jour

Gamanmynd
Leikstjóri Marion Vernoux

Fyrir alla aldurshópa.

Aðalhlutverk: Karin Viard, Hélène Fillières, Victor Lanoux, Jane Birkin

Ágrip.
Suma daga gengur allt á afturfótunum. Á einum sólarhring fá fjórar manneskjur vel útilátinn skammt af slæmum fréttum, áhyggjum og vonbrigðum. Marie Larue er 24ra ára lærlingur í ljósmyndun. Dagurinn hjá henni hefst á jákvæðri niðurstöðu úr þungunarprófi. Síðan rekur hvert ólánið annað. Bifhjólinu hennar er stolið, hún lendir í árekstri og henni er sagt upp. 
Hjá Luis Del Sol, fertugum, góðlátlegum strætisvagnabílstjóra, gerist það að kona hans tilkynnir honum fyrirvaralaust að hún ætli að fara frá honum. Hortense Lasaille, talkennari, 
er 33ja ára, tveggja barna móðir og hefur verið gift Antoine í tíu ár. Hún ákveður að eyða nótt með öðrum manni meðan eiginmaðurinn er í burtu en hún finnur engan rekkjunaut. 
Maurice Degombert sem nálgast sextugsaldurinn, geðstirður, atvinnulaus kokkur, undirbýr kvöldverð við kertaljós fyrir æskuástina sína, Marlène, sem hvarf á braut með öðrum manni fyrir 22 árum.


Fröken
Mademoiselle

Leikstjóri: Philippe Lioret

Kvikmynd fyrir alla aldurshópa

Aðalhlutverk: Sandrine Bonnaire, Jacques Gamblin, Isabelle Candelier, Zinedine Soualem

Ágrip
Claire Canselier, gift, tveggja barna móðir, starfar fyrir lyfjafyrirtæki við að kynna læknum ný lyf. Pierre Cassini kann spuna en er enginn leikari. Með aðstoð tveggja hjálparkokka, Alice og Karim, stjórnar hann námskeiðum fyrir fyrirtæki. Þau hittast á þingi í grennd við Lyon. 
Á einum sólarhring, fyrir röð tilviljana, verða kynni þeirra náin, þau fella hugi saman og upplifa stutt ástarsamband. Er endilega gefið að sú ást eigi sér enga framtíð?


S 21 La machine de mort Khmer
S 21 Drápsvél rauðu Khmeranna

Heimildamynd.
Leikstjóri: Rithy Panh
 
 
S 21 stendur fyrir " Monti Santesok S21 " aðalöryggismálaskrifstofu rauðu Khmeranna í Kambodíu. Þar var um17000 manns haldið föngnum, þeir pyntaðir, yfirheyrðir og síðan teknir af lífi. Þetta átti sér stað á árunum milli 1975 og 1979. Aðeins þrír þessara fanga eru enn á lífi. Í þessari mynd er leitast við að skilja hvað býr að baki tilkomu og kerfisbundinni framkvæmd einnar skelfilegustu hugmyndafræði 20. aldar, hugmyndafræði rauðu Khmeranna.
Í þrjú löng ár leituðu Rithy Panh og samstarfsfólk hans svara meðal þeirra fáu sem komust lífs af en einnig meðal fyrrum böðla sem fóru með þeim á fornar slóðir fangabúða S 21, þar sem nú er safn í minningu þjóðarmorðanna, til þess að rifja upp fyrrum atburði.


Óvinurinn 
L'adversaire 
 

Leikstjóri: Nicole Garcia, 2002. 129 mín.
 
Metaðsóknarmynd sem lætur engan ósnortinn. 
Myndin var í aðalkeppni kvikmyndarhátíðarinnar í Cannes 2002
Þegar maður myrðir konu sína, börn og foreldra er ljóst að rannsóknin beinist að fortíð hans. Daniel Auteuil fékk frönsku César verðlaunin fyrir leik sinn í aðalhlutverk

http://www.ladversaire-lefilm.com


Góða ferð
Bon voyage 
 

Fulltrúi Frakklands til Óskarsverðlauna 2004. Leikstjóri Jean-Paul Rappeneau (Cyrano Bergerac), 114 mín.
 
Hernám Þjóðverja er á næsta leiti. Fyrirmenn þjóðfélagsins í París, stjórnmálamenn, blaðamenn og njósnarar flykkjast í burtu frá París og setjast að á hóteli í Bordeaux.. Ótrúleg blanda af gríni, spennu og drama. Frábærir leikarar, m.a. Isabelle Adiani, Gérard Depardieu, Virgine Ledoyen og Peter Coyote.
 
 
 


Voltaire að kenna
La faute à Voltaire
 

Leikstjóri :Abdel Kechiche
avec Elodie Bouchez, Sami Bouajila, Aure Atika, Bruno Lochet
Jallel, líkt og Birtingur Voltaires, á sér draum um betra líf og flytur til Frakklands til að freista gæfunnar. Þar reikar hann um París gæfuleysingjanna, frá einum til annars, milli gististaða og félagsstofnana. Draumar um frægð og frama verða að engu en í þeirra stað fær hann að kynnast og eiga hlut í þeirri samkennd sem ríkir meðal hinna snauðu.
Myndin hlaut Gullljónið á Kvikmyndahátiðinni í Feneyjum árið 2000, verðlaun sem fyrsta kvikmynd höfundar og verðlaun ungra áhorfenda.
 
Verðlaun dómnemdarinnar í Namur