|

Fréttatilkynning frá AF
Fyrlestur um fordóma og áróđur í tungumálum
í tilefni „Tungumálaársins 2001“
Mánudagskvöldiđ 26. nóvember, í tilefni
"Tungumálaásins 2001", heldur Jacques Melot fyrirlestur í Alliance Française í JL-húsinu viđ Hringbraut 121,3. haeđ. Yfirskrift fyrirlestrarins er
"Fordómar og áróđur í tungumálum – Hugleiđingar um núverandi stöđu franskrar tungu og
annarra."
Ţar verđur leitast viđ ađ sýna fram á ákveđna fordóma varđandi tungumál, hvernig ţeir eru notađir og hvađa áhrif ţeir hafa, fordómar sem eru kerfisbundiđ notađir af ţeim sem beita áróđri til ađ halda einu tungumáli fram á kostnađ annars, einkum til ađ gera lítiđ úr eigin tungumáli.
Viđfangsefni fyrirlestrarins verđa m.a. ţessi: rökin sem notuđ voru á síđasta ári til ađ varpa ţjóđtungunni fyrir róđa og taka ţess í stađ upp ensku ţegar Ísland tók ţátt í
"Eurovision" söngvakeppninni, fjöltyngi á alţjóđlegum ráđstefnum, hugmyndin um
lingua franca, alţjóđlegt og alheimslegt tungumál, sambandiđ milli ţjóđarvitundar, sjálfsmyndar, hugsunar, tungumáls og hugmyndalegrar frumsköpunar (listir, vísindi og tćkni), tungumáliđ sem ţáttur í ţví ađ ná yfirráđum (hafa áhrif á hugsun og hátterni), tungumáliđ sem Trójuhestur hugsunarinnar, hnattvćđingin og áhrif hennar á fjölbreytni tungumálanna, fordómar í garđ Frakka, Íslendinga og tungumálakunnáttu ţeirra.
Fyrirlesarinn, Jacques Melot, er sveppafrćđingur og stćrđfrćđingur ađ mennt og stundar jafnframt rannsóknir á ýmsum sviđum (á vísindasögu, málvísindum o.s.frv.). Hann er sérfrćđingur í sveppaćtkvíslinni
Cortinarius og í nafnakerfi plantna og var um skeiđ ritstjóri
Tímarits félags franskra sveppafrćđinga. Hann hefur uppgötvađ fjöldann allan af nýjum sveppategundum og gefiđ ţeim opinbert nafn, ţar af um ţađ bil tuttugu á Íslandi.
Hann hefur ásamt norskum og sćnskum starfsfélögum sínum skrifađ frćđirit um sveppi,
"Cortinarius, Flora photographica", sveppaflóru sem hefur komiđ út á sćnsku, frönsku, ensku og ţýsku og er fimmta bindi verksins vćntanlegt í júní 2002. Jacques Melot hefur ţurft ađ beita fjölmörgum tungumálum varđandi starf sitt og hefur aukinheldur búiđ lengi fjarri heimalandi sínu, Frakklandi. Hann hefur ţví getađ kannađ tungumál, ekki ađeins frá sjónarmiđi tungumálsins, heldur einnig frá sjónarhóli sálfrćđi, félagsfrćđi og stjórnmála í rúma ţrjá áratugi.
Áriđ 1997 stofnsetti hann á Netinu vefsvćđiđ
Mycologia europaea sem nú er stćrsti samskiptavefur í heiminum á sviđi sveppafrćđi. Ţetta alţjóđlega spjallsvćđi er á ýmsum tungumálum og fjallar um sveppafrćđi gjarnan út frá mannlegum frćđum. Ţví er haldiđ úti af sveppafrćđingum frá tuttugu og fjórum löndum, ţar á međal sveppafrćđingum frá Norđurlöndunum.
Ađ fyrirlestri loknum munu fara fram umrćđur og fyrirspurnir.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.30 og er öllum opinn međan húsrúm leyfir. Ađgangur er ókeypis. Hann verđur fluttur á frönsku og ţýddur jafnóđum á íslensku af Torfa Tulinius, dósenti í frönsku.

|