Sýningin: Minningar frá Íslandi - Á slóð minjanna.
![]() |
“Hann kom aldrei aftur. Það var
eina nótt í ágústmánuði að brúðkaup þeirra Ránar og hans fór fram
langt norður í höfum, úti við Ísland. Var þar skuggalegt umhorfs og
hamfarir á alla vegu”. (Pierre Loti: Pêcheurs d Islande). Þessa
tilvitnun í verk Pierre Loti má lesa af minnisvarða í kirkjugarði
Reykjavíkurm reistum til heiðurs tveimur þjóðum, annars vegar
sjómönnum frá Bretagne, Gravelines eða Dunkerques sem reru til
þorskveiða við Íslandsstrendur, en þeir voru gjarna nefndir
Íslendingarnir, og hins vegar Íslendingum sem voru gestgjafar þeirra
í hartnær heila öld, frá 1852 til 1936. Sýningin sem hér um ræðir styðst við ljósmyndir og vitnisburði við að rekja sögu þessara skútusjómanna sem freistuðu þess að sækja gull í greipar Ægis við strendur Íslands. |
| Fátt er enn til vitnis um sögu þeirra, aðeins
einn og einn hlutur á stangli, annað hvort fenginn í vöruskiptum eða
keyptur á uppboði þegar skúta hafði strandað, sem og grafreitir
franskra sjómanna og fyrrum franskir spítalar. Alliance française
hyggst rekja sögu þessara minja á sýningu sem sett verður upp í
húsnæði félagsins að Tryggvagötu 8. Hervé Jézéquel ljósmyndari og mannfræðingurinn Vanessa Doutreleau fóru um landið þvert og endilangt, á slóðir minjanna, í lok vetrar ársins 2003, þess tíma sem fyrrum markaði upphaf sex til sjö langra mánaða franskra skútusjómanna við veiðar við Íslandsstrendur. Leið Hervé og Vanessu lá um Patreksfjörð, Grundarfjörð, Fáskrúðsfjörð, Skeiðarársand… staði sem Paimpol, Ploubazlanec, Gravelines, Binie, Dahouët… kallast á við. |
![]() |
Opnun syningarinnar “ Minningar frá Íslandi” í húsakynnum Alliance française að
Tryggvagötu 8 laugardaginn 5. júní kl.15
Opið daglega kl.13.30-18.00 6. til 30. júni. Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Exposition « Mémoires d’Islande, destins d’objets »
« Il ne revint jamais. Une nuit d’août, là-bas, au large de la sombre Islande,
au milieu d’un grand bruit de fureur, avaient été célébrées ses noces avec la
mer.» (Pierre Loti, Pêcheur d’Islande).
Inscrite sur une pierre commémorative dans le cimetière de Reykjavik, cette
citation de Pierre Loti célèbre la mémoire de deux peuples, tous deux «
Islandais » : les pêcheurs morutiers français (bretons, gravelinois ou encore
dunkerquois), et les Islandais qui furent leurs hôtes pendant près d’un siècle,
entre 1852 et 1936.
L’exposition « Mémoires d’Islande, destins d’objets », évoque au travers de
photographies et de témoignages l’histoire de ces pêcheurs venus un jour
chercher « fortune » en mer d’Islande.
De cette histoire, il ne reste guère que de rares traces matérielles, allant
d’objets éparses issus d’échanges et de naufrages aux cimetières marins et
anciens hôpitaux français, incarnés à l’Alliance française du 6 juin au 30 juin
dans des « récits de vie d’objets » .
Ces traces ont guidé d’est en ouest l’œil du photographe, Hervé Jézéquel, et de
l’ethnologue, Vanessa Doutreleau, à la fin de l’hiver 2003, période de l’année
qui inaugurait autrefois six à sept longs mois de pêche. Patreksfjörður,
Grundarfjörður, Fáskruðsfjörður, Skeiðarársandur…des noms auxquels répondent
ceux de Paimpol, Ploubazlanec, Gravelines, Binic, Dahouët…
Entrée libre du 6 au 30 juin de 13h30 à 18 heures