|
Velkomin til Alliance française í Reykjavík
september | október |
nóvember | desember |
janúar |
febrúar | mars |
apríl | maí
september 2006
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ:
Frá 18. sept. til 15. des. 2006, Innritun hafin í síma 552 3870
Félagsskírteini Alliance française, verð : 2900 kr.
(Ókeypis fyrir nemendur Alliance française)
Það veitir aðgang að :
BÓKASAFNI : Opið alla virka daga frá kl.16:00 til kl.20:00. Yfir 7000
bækur (skáldsögur, listir, vísindi, myndasögur, barnabækur) og fjöldi
tímarita.
DVD og myndbandsspólur með nýjum og eldri frönskum kvikmyndum,
heimildarmyndum og menningarþáttum.
MENNINGARVIÐBURÐUM : kvikmyndahátíðum, fyrirlestrum, tónleikum,
sýningum.
KVIKMYNDAKLÚBBNUM : Alliance française sýnir reglulega franskar
kvikmyndir og er aðgangur ókeypis fyrir meðlimi félagsins.
NÁMSFERÐUM TIL FRAKKLANDS : aðeins fyrir meðlimi. Ferðirnar eru farnar á
síðasta námskeiðstímabilinu, í lok maí.
NEMENDAFERÐIR TIL FRAKKLANDS
FRAMHALDSSKÓLAR
Alliance française býður frönskukennurum á Íslandi að skipuleggja í
samvinnu við félagið nemendaferðir sem eru sniðnar að þörfum nemenda :
dagsetningar og lengd dvalar, með eða án frönskunámskeiða, skemmtanir,
ferðalög og skoðunarferðir.
Málþing um Jean-Baptiste
Charcot
málþing í Háskóla Íslands í tilefni af því að 70 ár eru
liðin frá því rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Ísland.
Fimmtudaginn 14. september frá 14:00 -17:00 í Hátíðasal Háskóla
Íslands |
|
október
2006
 |
L´Alliance française og Háskólabíó kynna "Les
Mauvais joueurs" (Hinir tapsáru)
Sýningar í Háskólabíó : Mánudagur 30. okt. kl 20:00 / Fimmtudagur 2.
Nóvember kl. 22:00 / Sunnudagur 5. nóvember kl 18:00 /
Frakkland 2005, 85 mín.
Leikstóri: Frédéric Balekdjian
Aðalhlutverk : Pascal Elbé, Simon Abkarian, Isaac Sharry
Tegund : Sakamálamynd
Sentier hverfið í París. Jólin nálgast og líf Vahé Krikorian er á
leiðinni í vaskinn.
Fyrirtækið sem hann rekur með föður sínum er skuldum vafið og í þann
mund að fara á hausinn. Lu Ann, konan sem hann elskar, yfirgefur
hann og spilasvindlið sem hann stundar með Sahak og bróður sínum
Toros er honum ekki til framdráttar. Vahé missir tökin á tilverunni
og það verður ekki aftur snúið... |
nóvember
2006
Frönsk sálumessa á allra
heilagra messu
Sunnudaginn 5. nóvember gengst Listvinafélag Hallgrímskirkju fyrir
sálumessutónleikum. Að þessu sinni fær Listvinafélagið kammerkórinn
Schola cantorum og Alþjóðlegu barokksveitina í Haag til liðs við
sig. Flutt verða verkin Messe de requiem og De profundis eftir
franska tónskáldið André Campra (1660-1744) en hvorugt þessara verka
hefur verið flutt hér á landi áður.
Hefð hefur skapast fyrir því að flytja sálumessu í Hallgrímskirkju á
allra heilagra messu. Margir leggja leið sína í kirkjuna á þessum
degi til að minnast látinna ástvina sinna á hátíðlegan hátt og hefur
undanfarin ár verið uppselt á sálumessutónleika Listvinafélagsins.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Schola cantorum hefur í gegnum tíðina flutt ýmis verk
barokkmeistaranna við góðan orðstír. Að þessu sinni skipa kórinn tíu
söngvarar en nokkrir þeirra fara jafnframt með einsöngshlutverk.
Schola cantorum var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkur 2006.
Félagar AF fá 25% afslátt á miðaverði, þ.e. 1500 í stað 2000 kr. |
 |
24. nóvember kl. 20:00 í húsnæði
Alliance française: Þið getið upplifað eða endurupplifað ógleymanleg
atvik af sjónvarpsskjánum sem eru hluti af sameiginlegu minni
okkar.
Aðgangur er ókeypis á þessa sýningu en sætaframboð er takmarkað.
Þess vegna bjóðum við þeim sem kjósa þægindi að panta sér sæti í
síma 552-3870 (milli kl. 16 og 19).
Eftir sýninguna eru veitingar í boði franska sendiráðsins og
Alliance française. |
|
JÓLAHLAÐBORÐ
1. desember kl. 19:30 í húsnæði Alliance française:
Matreiðslumeistarinn François Fons býður upp á
sérstakan matseðil til þess
að hefja jólahaldið. Það er einnig mikilvægt að panta miða tímanlega
fyrir jólakvöldverðinn.
Alliance Française veitist sú ánægja að bjóða ykkur á sína árlegu
jólahátíð, sem haldin verður með hefðbundnu sniði 1. desember
kl.19:30 í húsakynnum AF.
Matreiðslan er í höndum François Fons
Verð: kr. 3.800 (1/2 flaska af rauðvíni innifalin) - greitt er við
pöntun (fyrir 27. nóv.) |
|
Varðandi félagsskírteinin:
Félagsskírteinin fyrir 2007 verða tilbúin á skrifstofu Alliance
française frá og með 10 desember 2006. Þau gilda til 31. desember
2007. Félagsskírteinið veitir ekki aðeins aðgang að bókasafninu
heldur njóta meðlimir A.F. einnig sérstakra kjara á viðburðum sem
verða í tengslum við Frakklandshátíðina sem haldin verður 22.
febrúar til 13. maí 2007. |
|
desember
2006
 |
Kvikmyndir: L´Alliance
Française og Háskólabíó kynna
"La
Trahison" (Svik)
Frakkland 2006, 80 mín.
Leikstóri: Philippe Faucon
Aðalhlutverk : Vincent Martinez, Cyril Troley, Ahmed Berrhama
Roque er yfirmaður herdeildar franska hersins í Alsírstríðinu.
Herdeild hans er staðsett í litlu þorpi í austurhluta landsins. Hann
er þreyttur á átökunum en reynir að sinna starfi sínu eftir bestu
getu. Þorpsbúar þurfa að þola kúgun og pyntingar að hálfu hersins og
hermennirnir eru að fram komnir. Roque kynnist ungum hermanni af
norður-afrískum uppruna og vinátta þeirra eykur enn á fáránleika
þessa ömurlega stríðs.
Aðgangur ókeypis fyrir félaga A.F. gegn framvísun þessa miða (eða
framvísun félagsskírteinis frá 2006 og 2007)
Sýningar í Háskólabíó : Fimmtudagur 14. Des. kl. 22:10 / Sunnudagur
17. Des. kl 18:00 / Mánudagur 18. Des. kl 20:00. |
janúar
2007
|
Hátíðin la Galette des Rois
verður haldin næsta laugardag í húsnæði Alliance Francaise,
Tryggvagötu 8, 2. hæð frá kl. 15:00.
Leikir fyrir börnin, dansað verður og sungið og auðvitað verður
kóngurinn krýndur!
500 kr. fyrir fullorðna - 250 kr. fyrir börn. Drykkir verða í boði
AFRADIS.
HÆGT VERÐUR AÐ SKRÁ SIG TIL FIMMTUDAGSKVÖLDS 11. JANÚAR með
tölvupósti til muriel@veislumeistarinn.is eða í síma 697 7514.
60 sæti í boði
|
|
|
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
Frá 15. janúar til 15. apríl 2007
Innritun hafin í síma 552 3870
Námskeiðin standa í 13
vikur frá 15. janúar til 15. apríl 2007. |
|
|
FÉLAGSSKÍRTEINI ALLIANCE
FRANÇAISE
Verð : 2900 kr.
Ókeypis fyrir nemendur Alliance française.
Það veitir að gang að :
-
BÓKASAFNI : Opið alla virka
daga frá kl. 16:00 til kl. 19:00 og á laugardögum frá kl. 15:30
til 17:30.
Yfir 7000 bækur (skáldsögur, listir, vísindi,
myndasögur,barnabækur) og fjöldi tímarita.
DVD og myndbandsspólur með nýjum og eldri frönskum kvikmyndum,
heimildarmyndum og menningarþáttum.
-
MENNINGARVIÐBURÐUM :
kvikmyndahátíðum,fyrirlestrum, tónleikum, sýningum.
-
KVIKMYNDAKLÚBBNUM : Alliance
française sýnir reglulega franskar kvikmyndir og er aðgangur
ókeypis fyrir meðlimi félagsins.
-
NÁMSFERÐUM TIL FRAKKLANDS :
aðeins fyrir meðlimi. Ferðirnar eru farnar á síðasta
námskeiðstímabilinu, í lok maí.
NEMENDAFERÐIR TIL FRAKKLANDS
FRAMHALDSSKÓLAR
Alliance française býður frönskukennurum á Íslandi að skipuleggja í
samvinnu við félagið nemendaferðir sem eru sniðnar að þörfum nemenda
: dagsetningar og lengd dvalar, með eða án frönskunámskeiða,
skemmtanir, ferðalög og skoðunarferðir. |
|
febrúar 2007
mars
2007
Alliance française skipuleggur
7. frönsku kvikmyndahátíðina sem verður haldin í Háskólabíó dagana 3. mars til 1. apríl. Stuðningsaðilar kvikmyndahátíðarinnar eru Peugeot, Bernhard og Reykjavík Grapevine.
Í þetta sinn verður boðið upp á 35 franskar kvikmyndir af ýmsum toga og má nefna að hin fræga leikkona Isabelle Huppert leikur í 9 myndum. Í tengslum við kvikmyndahátíðina verður svo sýning á 17 portrettljósmyndum af leikkonunni eftir ýmsa franska ljósmyndara (Carole Bellaiche, Edouard Boubat, Ronald Chammah, Roger Corbeau, Robert Doisneau, Claude Gassian, Jean-Henri Lartigue…). Sýningin verður einnig haldin í Háskólabíó.
Þann 24. mars verður kvikmyndin “Stríðsmenn fegurðar” með Ernu Ómarsdóttur frumsýnd. Myndin er sú fyrsta í röð níu kvikmynda eftir Pierre Coulibeuf sem verða sýndar á hátíðinni. Kvikmyndir Coulibeufs (heimildarmyndir, leiknar kvikmyndir og tilraunamyndir) hafa verið útnefndar og verðlaunaðar á ýmsum kvikmyndahátíðum.
“PARIS JE T’AIME” er ástarjátning til frönsku höfuðborgarinnar. 18 örsögur sem færa okkur hið ómótstæðilega andrúmsloft Parísarborgar. Margir af þekktustu leikurum og leikstjórum heims tóku þátt í gerð myndarinnar.
meira... |
 |
apríl 2007
maí
2007
júní
2007

Íslenskt félag stofnað árið 1911, skipuleggur frönskunámskeið og
menningarviðburði.
heimilisfang: Tryggvagata 8, sími: 552-3870. Fax: 562-3820.
Historique: <sept
2005 - mai 2006 | sept 2004
- mai 2005 | sept 2003 -
mai 2004 | sept 2002
- mai 2003 |
sept 2001 - mai 2002 | jan
- mai 2000 | oct - déc 1999
> |