Stangarhylur 3a
110 - Reykjavík
591 90 00 Símbréf: 591 90 01
Netfang: info@terranova.is
www.terranova.is

ALLIANCE FRANCAISE FERР

  12. - 19. mái 2003.
 
BRETAGNE - Á slóðum "Islandais"



Þessi ferð er sett upp í tilefni Siglingakeppninnar "Paimpol - Reykjavík - Akureyri - Paimpol", sem skipulögð er af Skippers d'Islande og fer frá Paimpol 1. júní. Farið verður um tvö helstu svæði Bretagne-skagans, Cornouaille við suður ströndina og Côte d'Emeraude et Côte de Granit Rose á norður ströndinni.

Mánud. 12/5
Brottför frá Keflavík kl. 07:45, koma til Parísar kl. 13:00. Lest til Quimper kl. 17:05, koma kl. 21:35.
Gist í Quimper.

Þriðjud. 13/5
Dagur í Quimper: skoðunarferð um borgina með leiðsögumanni frá staðnum. Hið fræga Faiencerie Henriot (allt handmálað og aldalangar hefðir í tækni og munstrum) heimsótt. Frjáls dagur eftir það, möguleiki á að skoða Musée de l'Alambic (allt um eplavínið Cidre), fara í göngu- eða reiðhjólaferð um nágrannasveitir, eða njóta lífsins á ströndinni ef veðrið býður uppá það.
Gist í Quimper.

Miðvikud. 14/5
Rútuferð frá þeim degi: skoðunarferð um Cornouaille, Pont Aven og listmálararnir (haldið verður árið 2003 uppá 100 ára afmæli fráhvarf Gauguins, sem dvaldi lengi í Pont Aven), Concarneau og fiskihöfnin, Pont l'Abbé og Bigouden landið.
Gist í Quimper.

Fimmtud. 15/5
Farið snemma með rútu frá Quimper til Huelgoat, sveita-Bretagne þar sem farið verður um Monts d'Arrée og Þjóðgarðinn Armorique, land álfanna "korrigans", fornminja "menhirs" og bænastaða "calvaires". Koma til Paimpol strax eftir hádegi, skoðunarferð um helsta staði tengda Íslandi og heimsókn til ráðamanna staðarins.
Sameiginlegur kvöldverður (ekki innfalinn í verðinu)
Gist í Paimpol.

Föstud. 16/5
Áfrh. skoðunarferðir um Paimpol. Ferð til Bréhat-eyjunnar (10 min. sigling) og Crêpes máltíð (ekki innifalið í verðinu).
Gist í Paimpol.

Laugard. 17/5
Keyrt frá Paimpol til Saint Malo eftir strandlengjunni "Côte de granit Rose", Cap Fréhel o.fl.. Komið til Saint Malo seinni part dags.
Gist í Saint Malo.

Sunnud. 18/5
Skoðunarferð um borgina og frjáls dagur eftir það. Valkvætt: skoðunarferð til Mont St Michel (ekki innifalið í verðinu). Farið seinni part dags til Rennes.
Gist í Rennes

Mánud. 19/5
Farið til Parísar með lest kl. 08:05, koma til Parísar 10:30, farið frá CDG flugvelli kl. 14:15 og lent í Keflavík kl. 15:45

(ath.: tímarnir eru með fyrirvara um staðfestingu frá Flugleiðum og SNCF)

Verð á mann:
Aukalega fyrir einbýli:
77 900 kr
15 000 kr

Innifalið í verðinu: flug, flugv.sk., akstur flugv.-lestarstöð, hótel-lestarstöð ef þarf (Rennes), eigin rúta frá Quimper til Rennes (5 dagar), hótelgistingin (2 eða/og 3*) með morgunv., íslensk fararstjórn
Ekki innifalið: máltíðir aðrar en morgunverður, valkvæðar skoðunarferðir (Bréhat og Mont Saint Michel) og aðgangseyrir þegar á við.

SKRÁNING OG GREIÐSLA:
Staðfestingagjald: 16 000 kr á mann greiðast við bókun
Bókunarfrestur: 15/3
Eftirstöðvar greiðast fyrir þ. 11/4