|
 |
Concert à Salurinn "Le marteau sans maître eftir Pierre Boulez (1954) /
Pierrot Lunaire : eftir Arnold Schoenberg (1912)
Verð fyrir félaga Alliance française: 1200 krónur (venjulegt verð: 2000kr.)
Tarif Spécial Membre de l'Alliance française : 1200kr ( Prix normal 2000 kr)
|
Á TÍBRÁR tónleikum í Salnum þann 15. október mun danska söngkonan Helene
Gjerris koma fram ásamt CAPUT undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Á
efnisskránni eru tvö af merkustu tónverkum 20. aldar; Pierrot Lunaire eftir
Arnold Schoenberg frá árinu 1912 og Le Marteau sans Maitre eftir Pierre
Boulez frá árinu 1954 (frumflutningur á Íslandi).
Fá - ef nokkur - tónskáld hafa haft meiri áhrif á þróun tónlistarinnar á
síðustu öld en þeir Arnold Schoenberg og Pierre Boulez, þó verk þeirra
heyrast engu að síður mjög sjaldan á tónleikum hérlendis. Pierrot
Lunaire
var flutt af Rut Magnússon og Kammersveit Reykjavíkur árið 1980, en Le
Marteau sans Maitre hefur aldrei verið flutt á Íslandi.
Miðaverð : Alliance française 1200 kr
Miðaverð: 2.000 kr. Sími í miðasölu er 5 700 400. Netsala: www.salurinn.is
(ATH! nýjung! Hægt er að kaupa miða á netinu).
Miðasala Salarins er opin virka daga kl. 9.00-16.00 og klst. fyrir tónleika.
Pierrot Lunaire eftir Arnold Schoenberg (1912) er samið við ljóð belgíska skáldsins Albert Giraud, í þýskri þýðingu.
Þorsteinn Gylfason hefur þýtt ljóðin á íslensku. Þau fjalla um hinn
tunglsjúka trúð Pierrot og samskipti hans við ýmsar aðrar persónur úr
Commedia del´arte leikhúsinu. Pierrot markar einn af hápunktum expressionismans í tónlistarsögunni. Verkið er samið fyrir þýsku
revíuleikkonuna Albertine Zehme og fimm hljóðfæraleikara (með flautur,
klarinettur, píanó, fiðlu/víólu og selló) Verkið var frumflutt í Berlín þann
16. október 1912. Höfundur ætlast ekki til þess að verkið sé sungið en
heldur ekki mælt fram á "venjulegan" hátt. Hver söng/leikkona verður að
nálgast þetta margræða verk á sinn eigin hátt, en flutningur þess er ein
mesta ögrun sem mætt getur einni söngkonu.
Le Marteau sans Maitre eftir Pierre Boulez (1954)
Sem ungur og afar byltingarsinnaður tónlistarmaður skrifaði frakkin Pierre
Boulez greinina "Schoenberg est mort". Síðan hófst hann handa við samningu
Le Marteau sans Maitre sem að mörgu leyti kallast á við Pierrot. Verkið er
samið við súrrealísk ljóð franska skáldsins Rene Char. Þorsteinn Gylfason
hefur þýtt þessi ljóð í tilefni TÍBRÁ tónleikanna. Verkið er skrifað fyrir
alt-söngkonu, altflautu, víólu, gítar og þrjá slagverksleikara. Hljómur
þessa verks er einstakur og heillandi. En tónvefurinn er gríðarlega flókinn
og eins og í mörgum öðrum verka sinna frá þessum tíma gerir Boulez nær
ómanneskjulegar kröfur til flytjenda, . . . sem er þá væntanlega ástæða þess
að við höfum þurft að bíða í hér um bil hálfa öld eftir íslenskum flutningi.
Tónleikarnir eru styrktir af Menningarsjóði FÍH, Félags íslenskra
hljóðfæraleikara.
Flytjendur á þessum tónleikum eru auk Helene Gjerris og stjórnandans
Guðmundar Óla Gunnarssonar:
Kolbeinn Bjarnason, flautur
Guðni Franzson, klarinettur
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Daníel Þorsteinsson, píanó
Pétur Jónasson, gítar
Guðmundur Kristmundsson, víóla
Pétur Grétarsson, slagverk
Steef van Oosterhout, slagverk
Frank Aarnink, slagverk
|